Lesa frétt

Íslandsmótið í knattspyrnu hefst um helgina

Meistaraflokkur karla í knattspyrnu leikur sinn fyrsta leik í sumar á sunnudaginn kemur, 9.maí. Leikið verður við Gróttu á Seltjarnarnesi og hefst leikurinn klukkan 14:00. Það er hugur í mönnum fyrir tímabilið og markmiðið er að gera betur en í fyrra.

Nú er um að gera að mæta á völlinn á sunnudaginn, taka fjölskylduna með og styðja ÍR til sigurs í fyrsta leik.

Þeir sem vilja koma sér í rétta gírinn geta hlustað á ÍR-lagið með því að smella HÉR.

ÁFRAM ÍR