Lesa frétt
Fótbolti er fjör.
KSÍ kemur að hátíðinni með ýmsum hætti og má þar nefna skipulagningu á komu landsliðsleikmanna karla og kvenna á hátíðina, plaggöt af A-landsliðum Íslands og vinninga í happdrætti hátíðarinnar. Íþróttaþjálfarar skólana tóku við boltunum frá Halldóri Þ. Halldórssyni yfirþjálfara barna og unglinga hjá knattspyrnudeild ÍR og þökkuðu þau kærlega fyrir þessa rausnarlegu gjöf.
Margt skemmtilegt var á dagskrá og það má með sanni segja að hátíðin hafi tekist vel enn eitt árið. Líklegast hafa verið um 80 stelpur og c.a. 150 strákar sem tóku þátt í ýmsum þrautum og nutu leiðsagnar frá þjálfurum knattspyrnudeildar og eldri iðkendum sem æft hafa knattspyrnu hjá ÍR síðustu ár. Fyrirtækið Rolf Johansen og co ehf gaf öllum þátttakendum Soccerade drykk og BK kjúklingur, Altiz íþróttavörur og Leiksport í Hólagarði gáfu veglega vinninga í happdrættið.
Gunnleifur Gunnleifsson landsliðsmarkvörður Íslands og Alfreð Finnbogasson leikmaður U21 árs landslið Íslands komu fyrir hönd knattspyrnusambandsins en A-landsliðsleikmenn kvenna urðu að afboða sig á síðustu stundu vegna breytinga á leikjum í meistaraflokkum þennan dag. Við munum samt fá að njóta nærveru þeirra fljótlega, því þær buðust til að koma til okkar á æfingar í staðinn. Og við þáðum það boð með þökkum og verður það sérstaklega tilkynnt síðar.
Margar skemmtilegar myndir voru teknar á hátíðinni og það verður hægt að skoða þær á slóðinni http://www.ir.is/Deildir/Knattspyrna/MYNDASAFN/Ymsarmyndir/?