Lesa frétt

Aðalfundur barna og unglingaráðs knattspyrnudeildar ÍR

Aðalfundur barna og unglingaráðs knattspyrnudeildar ÍR verður haldinn miðvikudaginn 28. Apríl kl. 20:30 í ÍR heimilinu.

Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á uppeldisstarfi knattspyrnudeildarinnar til þess að mæta á fundinn:

Fundarefni
1.    Kosning fundarstjóra og fundarritara
2.    Skýrsla stjórnar um starfsemi barna og unglingaráðs
3.    Lesnir og skýrðir rekstrar- og efnahagsreikningar fyrir 2009
4.    Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár
5.    Kosning stjórnar
6.    Önnur mál

Ráðið er skipað 7 einstaklingum og hafa allir gefið kost á sér til áframhaldandi setu fyrir utan einn.  Þeir sem hefðu áhuga á að taka sæti í ráðinu eru hvattir til að gefa sig fram við formann ráðsins.

Á meðfylgjandi link má sjá skilgreiningu á hlutverki barna- og unglingaráðs:
http://www.irsida.is/Deildir/Knattspyrna/KnattspyrnudeildIR/Starfslysingar/Barnaogunglingarad/

Með kveðju,

Guðmundur Sigurðsson
Formaður barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar ÍR