Lesa frétt

Fótboltahátíð knattspyrnudeildar 2010

Hátíðinni er skipt í upp í tvo hluta. Annar hlutinn verður einungis fyrir stelpur og hinn einungis fyrir stráka.

Stelpur eiga að koma kl 11:00 - 13:00.
Strákarnir eiga að koma kl 14:00 - 16:00.

Það verður margt skemmtilegt í boði og allir þátttakendur eiga kost á því að láta draga nafn sitt út í happdrætti sem  verður haldið í tilefni hátíðarinnar. Ýmsar skemmtilegar þrautir verða í boði og leikmenn úr yngri og eldriflokkum félagsins verða þátttakendum innan handar í þrautunum og aðstoða þá sem þurfa. Landsliðs-menn/konur koma á staðinn og gefa plaggöt af landsliðinu, ásamt því að aðstoða við þrautirnar og árita á plaggötin fyrir þá/þær sem vilja. Þjálfarar yngriflokka munu hjálpa þátttakendum í þrautunum og svara spurningum foreldra/forráðamanna um starfið sem framundan er í sumar og næsta haust.

Vonandi geta sem flestir gefið sér tíma og tekið þátt í þessari skemmtunn. Soccerade mun gefa öllum þátttakendum drykk og margt annað verður hægt að vinna fyrir góðan árangur í þrautunum...

Meðal annars er hægt að láta mæla skotkraft og spretthraða með sérhönnuðum tækjum.

Knattspyrnukveðjur
Barna og unglingaráð knattspyrnudeildar ÍR og Halldór Þ. Halldórsson yfirþjálfari barna og unglinga hjá knd.