Lesa frétt
Aðalfundur knattspyrnudeildar verður haldinn 24. mars 2010 kl.20 í ÍR-heimilinu
Aðalfundur knattspyrnudeildar verður haldinn 24. mars 2010 kl.20 í
ÍR-heimilinu
Aðalfund deilda skal halda fyrir marslok ár hvert. Kosningarétt og
kjörgengi hafa allir deildarmenn, sem orðnir eru 16 ára að aldri. Til
aðalfundar skal boðað með viku fyrirvara á tryggilegan hátt. Er hann
lögmætur ef 15 deildarmenn mæta, eða 50% af lögmætum deildarmönnum, séu
þeir færri en 30.
Dagskrá aðalfundar skal vera svo:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins.
3. Lesnir og skýrðir rekstrar- og efnahagsreikningar fyrir síðasta
almanaksár.
4. Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
5. Kosinn formaður.
6. Kosnir aðrir stjórnarmenn og tveir stjórnarmenn til vara.
7. Kosnir fulltrúar og varafulltrúar á aðalfund félagsins.
8. Ákveðin æfingagjöld.
9. Önnur mál.