Hin hliðin á leikmönnum meistaraflokks ÍR
ÍR – Hin hliðin


1.Fullt nafn:
Davíð Már Stefánsson
2.Aldur:
18 ára
3.Hvenær lékstu þinn fyrsta meistaraflokksleik ?
16 ára
4.Með hvaða liðum hefuru spilað ?
ÍR eingöngu.
5.Félag í ensku ?
Man Utd
6.Grófasti leikmaðurinn í ÍR ?
Andri Björn er ekki grófur hann er bara ákveðinn, Kalli á það til að meiða.
7.Fallegasti leikmaðurinn í ÍR ?
Hrannar Karlsson
8.Hvaða leikmaður ÍR er slakastur í reit ?
Axel Kári er skúrkur reitsins.. hann er samt ekkert endilega slakastur.
9.Nefndu 2 leikmenn í ÍR sem þú myndir vilja hafa með þér í liði á hverri æfingu.
Atlarnir.. þá gæti ég verið frammi.
10.Ef þú mættir breyta eða bæta við reglu í knattspyrnu, hvernig væri hún þá ?
Engar hliðarlínur.
11.Hvaða liði myndir þú aldrei spila með ?
KR, FH og Leikni.
12.Sætasti sigurinn ?
Úrslitaleikur á móti Fylki í 3. Flokk og úrslitaleikur RVK mótsins hér um árið.
13.Hvert var átrúnaðargoð þitt á yngri árum ?
Arnaldur Smári Stefánsson... og er enn.
14.Segðu frá skemmtilegu atviki í leik.
Í Danmörku þá þurfti að fresta leik okkar um ákveðinn tíma þegar markmaður okkar var með hor á gleraugum sínum, í sama leik sofnaði bakvörður okkar á stönginni í hornspyrnu.
15.Komdu með gullkorn frá leikmanni.
„Djöfull erum við góðir saman, við vinnum saman eins og köttur og mús.“ – Andri Björn
16.Uppáhalds matur sem þú eldar sjálfur ?
Ristað brauð
17.Hver er frægasta persónan í símanum þínum ?
Jacob úr The Drums eða Flavor Flav.
18.Ef þú mættir velja um hvort þú værir ósýnilegur eða myndir stoppa tímann, hvort myndir þú velja og afhverju ?
Stoppa tímann... þú ert ósýnilegur fyrir öðrum á meðann tíminn er stopp.
19.Vandræðalegasta móment sem hefur hent þig ?
Þegar ég var skammaður fyrir framan alla í vinnunni fyrir að kúka úti.
ÍR - hin hliðin

1.Fullt nafn:
Jón Gísli Ström
2.Aldur:
Nýorðinn 17 ára
3.Hvenær lékstu þinn fyrsta meistaraflokksleik ?
Hef ekki leikið á íslandsmóti, en fyrsti var á móti KR í Reykjarvíkurmótinu
4.Með hvaða liðum hefuru spilað ?
ÍR, síðan unglinga landsliðum og reykjavíkur úrvali, ef þau teljast sem „lið“
5.Félag í ensku ?
Manchester United
6.Grófasti leikmaðurinn í ÍR ?
No komment
7.Fallegasti leikmaðurinn í ÍR ?
Allir fjallmyndarlegir en Nonni stendur uppúr
8.Hvaða leikmaður ÍR er slakastur í reit ?
Brynjar markvörður
9.Nefndu 2 leikmenn í ÍR sem þú myndir vilja hafa með þér í liði á hverri æfingu.
Trausti Björn og Árni Freyr
10.Ef þú mættir breyta eða bæta við reglu í knattspyrnu, hvernig væri hún þá ?
Að það mætti sleppa legghlífum
11.Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki ?
Hvernig þá ? já svona semí,
12.Hvaða liði myndir þú aldrei spila með ?
LEIKNIR
13.Sætasti sigurinn ?
Þegar við unnum Fylki í úrslitaleik haustmótsins 2008-09
14.Hvert var átrúnaðargoð þitt á yngri árum ?
DAVID BECKHAM
15.Lýstu Lauga þjálfara í einni setningu ?
Laugi er gríðalega skemmtilegur karakter.
16.Segðu frá skemmtilegu atviki í leik.
Þegar ég var að spila á móti ÍA og ég skoraði beint eftir upphafsspyrnu frá miðju og ég hljóp og reif mig úr bolnum og fagnaði með því að knúsa línuvörðinn.
17.Komdu með gullkorn frá leikmanni.
Þjáfari: Jón gisli hvað er að?
Jón Gísli: Ég er með ristilbólgu
Þjálfari : ha ?
Jón Gísli : Já, þú‘st... bólginn á ristinni
18.Segðu frá eitthverju um þig sem enginn annar leikmaður ÍR veit um.
Ég var á mestu mútum á Íslandi !
19.Uppáhalds matur sem þú eldar sjálfur ?
hef ekki eldað mikið, en Pizzan kemur alltaf mjög sterk inn !
20.Hver er frægasta persónan í símanum þínum ?
Ólafur Björn Lárusson
21.Ef þú mættir velja um hvort þú værir ósýnilegur eða myndir stoppa tímann, hvort myndir þú velja og afhverju ?
Stoppað tíman , þá væri alltaf svo rólegt að ég gæti gert hvað sem ég vildi haha
22.Vandræðalegasta móment sem hefur hent þig ?
Er ekki viss hvað vandæðilegasta mómentið er :/
23.Stærsta afrek ?
Vera valinn í unglinga landsliðið.