Lesa frétt
Nýjungar á heimasíðu ÍR

Skiptimarkaðurinn sem hefur verið hér á heimasíðu ÍR undir hverri deild
hefur nú verið færður yfir á ÍR-spjallið. Þetta nýja fyrirkomulag er mun hentugra
þar sem nú getur hver og einn komið sínu á framfæri án þess að hafa neinn
milligöngumann. Þetta kerfi er mun skilvirkara og vonum við að ÍR-ingar
taki þessari nýjung vel og nýti sér skiptimarkaðinn.
Það athugasemdakerfi sem nú hefur verið innleitt hefur þann kost að bæði
er hægt að skrifa athugasemd beint inn fyrir neðan viðkomandi frétt og einnig
er hægt að tengja athugasemdina við facebook. Þetta athugasemdakerfi
er bæði einfalt og þægilegt og það er um að gera fyrir þá sem nýta sér þessa heimasíðu
að koma skoðunum sínum á framfæri. Þess skal þó geta að hér gilda reglur um almenna kurteisi og
er þessu athugasemdakerfi ætlað að vera vettvangur málefnalegra umræðna.