Lesa frétt

ÍR fær jafnréttisverðlaun KSÍ annað árið í röð

Jafnréttisverðlaun KSÍ voru veitt í annað skiptið á ársþingi KSÍ 13. febrúar sl.  Að þessu sinni voru það tvö félög sem fengu viðurkenningu en það voru ÍR og ÍA. ÍR fékk viðurkenninguna að þessu sinni fyrir aðgerðaráætlun gegn einelti en þessi áætlun tók gildi þann 1.desember sl.


Það er gaman að segja frá því að ÍR fékk einnig jafnréttisverðlaun KSÍ árið 2009 og hefur því fengið þau í þessi tvö ár sem þau hafa verið veitt.