n1_logo_grunni





Lesa frétt
29.4.2012

ÍR Íslandsmeistarar liða í 1. deild kvenna og karla í Keilu

Kvennalið ÍR-TT og karlalið ÍR-KLS eru Íslandsmeistarar liða 2012 í keilu og endurheimtu með sigrinum titlana frá árinu 2010.

 

Liðsmenn ÍR-TT unnu deildarmeistarana ÍR-Buff í þremur spennandi viðureignum 12 – 8, 12 – 8 og 11 – 9 og samtals 35 – 25. KFR-Valkyrjur og KFR-Afturgöngurnar sem töpuðu fyrir ÍR-TT og ÍR-Buff í undanúrslitunum deila því með sér 3. sæti deildarinnar.

 

Deildarmeistararnir ÍR-KLS unnu Skagamenn KFA-ÍA sem urðu í 3. sæti í deildinni í úrslitunum samtals 34 – 26 og fóru viðureignir þeirra 10 – 10, 15 – 5 og 9 – 11. KFR-Lærlingar sem biðu lægri hlut fyrir KFA-ÍA í undanúrslitunum og ÍR-PLS sem töpuðu fyrir ÍR-KLS deila með sér 3. sæti deildarinnar.

 ÍR-TT Íslandsmeistar kvenna í Keilu 2012

Liðsmenn ÍR-TT eru (talið frá vinstri) Sigríður Klemensdóttir, Guðný Gunnarsdóttir, Katrín Fjóla Bragadóttir, Linda Hrönn Magnúsdóttir og Sigurlaug Jakobsdóttir.

 

ÍR-KLS Íslandsmeistarar í Keilu 2012

Liðsmenn ÍR-KLS eru (talið frá vinstri) Andrés Páll Júlíusson, Stefán Claessen, Einar Magnússon og Magnús Magnússon. Á myndina vantar Árna Geir Ómarsson.