Lesa frétt
7.5.2010
ÍR Íslandsmeistarar í keilu

Fimmtudaginn 6. maí urðu ÍR-ingar tvöfaldir Íslandsmeistarar í keilu en ÍR-TT varð Íslandsmeistarar í kvennaflokki og ÍR-KLS í karlaflokki. ÍR-TT vann KFR-Valkyrjur nokkuð sannfærandi en ÍR liðið var rosalega vel stillt alla úrslitakeppnina. Þetta er í fyrsta skipti sem ÍR lið kvenna verður Íslandsmeistari í keilu. Hinn úrslitaleikurinn var mun meira spennandi en ÍR-KLS þurfti að vinna upp forskot KFR-Lærlinga. Strax eftir fyrsta leikinn var búið að vinna upp forskotið og allt stefndi í öruggan sigur ÍR-KLS en þó tókst ekki að tryggja sigurinn fyrr en um miðjan seinasta leik.
Til hamingju ÍR-TT og ÍR-KLS með frábæran árangur.
ÁFRAM ÍR