Lesa frétt
6.5.2010
Úrslitakeppnin
Verður brotið blað í sögu keiludeildar ÍR í kvöld?
Þá er lokið tveimur spennandi viðueignum í úrslitakeppninni á Íslandsmóti liða. ÍR-TT er komið með vænlega stöðu gagnvart KFR-Valkyrjunum eftir 13 - 7 sigur í báðum fyrstu viðureignunum og eru því í stöðunni 26 - 14 komnar langleiðina með að tryggja liðinu og félaginu sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í 1. deild kvenna. ÍR-KLS tapaði fyrstu viðureigninni við KFR-Lærlinga 4 - 16, en komu sterkir til baka og sigruðu 15 - 5 í annarri viðureigininni og staðan því 21 - 19 fyrir KFR-Lærlinga.
Við megum því reikna með hörkukeppnin í síðustu viðureignunum sem fara fram í Keiluhöllinni í kvöld fimmtudaginn 6. maí og hefjast kl. 19:00. Við þökkum þeim ÍR ingum sem hafa mætt til að styðja liðin og hvetjum nú alla ÍR inga til að mæta og leggja sitt af mörkum nú á lokasprettinum. ÍR búningar, fánar, veifur og annar útbúnaður velkominn á keppnisstað. Áfram ÍR!
Úrslitin í Bikarkeppni KLÍ fara síðan fram í Öskjuhlíðinni laugardaginn 8. maí kl. 12:00. Þar keppa þessi tvö ÍR lið einnig til úrslita, ÍR-KLS keppir við KFA-ÍA og ÍR-TT keppir við KFR-Skutlurnar.
Að lokum viljum við minna á Árshátíð KLÍ sem fer fram í Rúbín laugardagskvöldið 8. maí, sjá nánar í auglýsingum.