Lesa frétt
3.5.2010

Landsliðið í Svíþjóð

Karlalandsliðið í keilu fór til Svíþjóðar og keppti í einstaklingskeppni sem heitir Supersixxxxxx við erfiðar aðstæður þe, olíuburður var frekar stuttur og brautir hraðar, þess má geta að Arnar Sæbergsson komst í gegnum niðurskurðinn og komst í 32 manna úrslit.  Þetta er einn undirbúningur fyrir HM sem verður í ágúst í Þýskalandi og koma strákarnir
reynslunni ríkari undan þessari keppni.
Spilamennska þeirra var svona.
Arnar Sæbergsson: 1120-1229-1260, sæti 21
Hafþór Harðarson: 1046-1188-1230, sæti 45
Jón Ingi Ragnarsson: 1047-1110-1178, sæti 75
Árni Geir Ómarsson: 1141-1165-1016, sæti 95
Magnús Magnússon: 1113-1076-1151, sæti 109
Stefán Claessen: 1046-1136, sæti 122
Róbert Dan Sigurðsson: 1025-1094-1109, sæti 148