Lesa frétt
1.3.2010
Æfingabúðir í Helsingborg
Það hefur verið ákveðið að halda æfingabúðir í Helsingborg Svíþjóð í byrjun september að þessu sinni, þetta er góður tími til að byrja tímabilið. Þeir ÍR ingar sem fóru í fyrra ganga fyrir og aðrir komast að ef pláss leyfir og fer eftir í hvaða röð þeir skrá sig. Skráningaform verður sett upp á netinu eins og um keppni verður að ræða og þegar fólk hefur skráð sig skoðum við það sem bindandi skráningu nema eitthvað óvænt komi upp á hjá viðkomandi.