Nettó

Bros


Tryggingamiðstöðin









 
Yngri flokkar
20.12.2011

Tveir ÍR-ingar valdir í æfingahópa í yngri landsliðum í körfubolta

Tveir ÍR-ingar valdir í æfingahópa í yngri landsliðum í körfuboltaUm jólin fara fram æfingar hjá yngri landsliðum Íslands í körfubolta en um er að ræða undirbúning fyrir Norðurlandamót.  Að þessu sinni hafa tveir ÍR-ingar verið valdir í æfingahópa en það eru þau Sæunn Elín Ragnarsdóttir í U16 og Þorgrímur Kári Emilsson í U18.  Óskum þeim báðum til hamingju og erum stolt af þessum glæsilegu fulltrúum okkar.
10.12.2011

Jólamót Nettó og ÍR

Um 400 börn og foreldrar voru mætt á Jólamót Nettó og ÍR sem fram fór í Seljaskóla helgina 2-3. des.
ÍR-ingar eru himinlifandi með mótið og sagði Gunnar, þjálfari meistaraflokks ÍR og einn af skipuleggendum mótsins að mótið hafi tekist mjög vel og ekki var bara verið að spila frábæran körfubolta, heldur að góða skapið var til staðar.
Það virðist vera mikill uppgangur í öllum liðum miðað við þátttökuna á jólamóti Nettó og ÍR. 

ÍR vill þakka öllum krökkunum, þjálfurum, foreldrum og forráðamönnum fyrir þátttökuna og að gera mótið svona skemmtilegt.
2.12.2011

Jólamót Nettó um helgina

Helgina 3.-4. desember verður haldið jólamót Nettó. Vegna fjölda þátttakenda fara leikir á laugardag einnig fram í Breiðholsskóla. Hægt er að sjá leikjaniðurröðun á www.facebook.com/irkarfa
22.9.2011

Íslandsmótið í Stinger

Körfuknattleiksdeild ÍR og KARFAN.IS standa að fyrsta íslandsmótinu í STINGER laugardaginn 1.október í Seljaskóla kl.13:00

Vegleg verðlaun í boði

29.6.2011

ÍR er að leita að íþróttafræðing eða þjálfara með reynslu fyrir 3-6 ára börn í Íþróttaskóla ÍR

 Íþróttaskólinn er starfræktur á veturna, frá septemberbyrjun og fram í miðjan maí. Um er að þrjá hópa (tvo 3-4 ára og einn 5-6 ára). Einn hópur er á laugardagsmorgnum en hinir tvo seinniparta í miðri viku. Hver tími er 45 mínútur. Aðstaðan er í íþróttasal að Skógarseli 12, 109 Reykjavík.
Í Íþróttaskólanum reyna börn á jafnvægi, fín- og grófhreyfingar, samhæfingu og líkamlegan þroska sem og félagslegan. Þau læra að bera virðingu fyrir öðrum og vinna saman. Skynfærin þarf einnig að örva og samhæfa og í leikfimi sem þessari reynir á þau öll. Nánari upplýsingar veitir Sigrún íþróttafulltrúi ÍR í síma 864-0061 eða sigrun@ir.is
23.6.2011

Ólypíudagurinn í dag.....allir að mæta og hafa gaman í allskonar íþróttum.

Dagskrá á svæði ÍR 23.júní
Hlaup kl.16:00-16:30

Allir hlaupa í hóp á eftir kyndilbera. Fyrstur kemur kyndilberi, svo iðkendur í keppnisbúningum og aftast kemur almenningur.
Íþróttastöðvar kl.16:30-18:00
Dans, Júdó, Frjálsar, Karfa, Fótbolti, Handbolti, Keila, Skíði, TKD  

Þeir sem geta mæta í þeim galla sem einkennir þeirra íþrótt. Við viljum sjá skíðahjálminn, danskjólinn, handboltann, legghlífarnar, hvíta gallann, gaddaskóna um hálsinn, körfubolinn og hvað eina. Eins viljum við sjá sem flesta úr hverfinu, unga sem aldna.  

Ath. allir sem taka þátt á íþróttastöðvunum, fá viðurkenningu fyrir þátttöku og vatnsbrúsa að gjöf.

20.6.2011

Ólympíudagur á svæði ÍR þann 23.júní....allir að mæta!

Alþjóðlegi Ólympíudagurinn verður haldinn hátíðlegur um allan heim þann 23. júní. Þennan dag var Alþjóðaólympíunefndin stofnuð árið 1894 og ætlar ÍR að gera sitt í því að vekja athygli á leikunum.

Dagskrá á svæði ÍR 23.júní

Hlaup kl.16:00-16:30

Allir hlaupa í hóp á eftir kyndilbera. Fyrstur kemur kyndilberi, svo iðkendur í keppnisbúningum og aftast kemur almenningur.
Íþróttastöðvar kl.16:30-18:00
Dans, Júdó, Frjálsar, Karfa, Fótbolti, Handbolti, Keila, Skíði, TKD  

Allir krakkar eru hvattir til að mæta í ÍR klæðnaði og þau sem eru að keppa með ÍR mæti í sínum einkennisfatnaði, því meira því betra. Við viljum sjá skíðahjálminn, danskjólinn, handboltann, legghlífarnar, hvíta gallann, gaddaskóna um hálsinn, körfubolinn og hvað eina. Eins viljum við sjá sem flesta úr hverfinu, unga sem aldna.  

Ath. allir sem taka þátt á íþróttastöðvunum, fá viðurkenningu fyrir þátttöku.

11.5.2011

Uppskeruhátíð körfuknattleiksdeildar ÍR

Uppskeruhátíð körfuknattleiksdeildar ÍR verður haldin í ÍR-heimilinu fimmtudaginn 12. maí kl. 18:30 og er hátíðin fyrir alla flokka deildarinnar.  Þar verða veittar viðurkenningar skv. venju en að því loknu verður boðið upp á pylsur og gos.  Iðkendur, forráðamenn, ættingjar iðkenda og velunnarar eru hvattir til að mæta.
24.3.2011

Meistaraflokkur karla í körfu tapaði naumt í Keflavík í framlengdum leik

ÍR tapaði naumlega eftir framlengingu í oddaleik gegn Keflvíkingum. Eftir venjulegan leiktíma var staðan 78-78 en endaði í 95-90.
Full rúta af flottum máluðum og litskrúðugum ÍR -ingum héldu í Toyota höllina og horfðu þar á spræka ÍR -inga etja kappi við Keflvíkinga á þeirra heimavelli. Sprækir og ákveðnir ÍR -ingar ætluðu sér sigur í þessum leik en svo fór sem fór og hafði léleg nýting ÍR -inga í vítaskotum sitt að segja.
Nánar um leikinn m.a. hér.