Lesa frétt
10.12.2011
Jólamót Nettó og ÍR
Um 400 börn og foreldrar voru mætt á Jólamót Nettó og ÍR sem fram fór í Seljaskóla helgina 2-3. des.
ÍR-ingar eru himinlifandi með mótið og sagði Gunnar, þjálfari meistaraflokks ÍR og einn af skipuleggendum mótsins að mótið hafi tekist mjög vel og ekki var bara verið að spila frábæran körfubolta, heldur að góða skapið var til staðar.
Það virðist vera mikill uppgangur í öllum liðum miðað við þátttökuna á jólamóti Nettó og ÍR.
ÍR vill þakka öllum krökkunum, þjálfurum, foreldrum og forráðamönnum fyrir þátttökuna og að gera mótið svona skemmtilegt.