Fyrr í dag var dregið í undanúrslitum Bikarkeppni Subway og KKÍ, en í karlaflokki voru í pottinum lið ÍR, Grindavíkur, Snæfells og Keflavíkur.
Liðin drógust svona saman:
Grindavík – ÍR
Keflavík – Snæfell
Leikirnir fara báðir fram suður með sjó sunnudaginn 7. febrúar nk.
ÍR hefur á síðustu árum tvívegis fengið útileik gegn Grindavík í undanúrslitum bikarsins, árin 2001 og 2007, og urðu í bæði skiptin
bikarmeistarar.