Lesa frétt
19.1.2010
Tap í deild, en sigur í bikar
Það var hins vegar allt annað upp á tengingum í Smáranum, þegar ÍR-ingar mættu Breiðablik í bikarnum. Bæði lið komu brjáluð til leiks eftir slæma tapleiki á föstudagskvöldinu og voru tilbúin til að berjast fyrir sætinu í undanúrslitunum. Leikurinn var jafn og hörkuspennandi allan tímann, en ÍR-ingar héldu naumri forystu allan leikinn og höfðu sanngjarnan sigur að lokum 87-94. Margir okkar manna voru að spila mjög góðan leik, Mike var með 28 stig og 7 stoðsendingar, Sovic með 18 stig og 7 fráköst, Steinar með 15 stig, Kristinn með mjög góðan leik og 10 stig og Hreggviður með 9 stig og 9 fráköst. Þar með eru ÍR-ingar komnir í undanúrslit ásamt Snæfelli, Grindavík og Keflavík. Dregin verður á morgun og um að gera að liggja á bæn um heimaleik.