Lesa frétt
12.1.2010
Hörkuspenna í Njarðvík
ÍR-ingar heimsóttu Njarðvíkinga í gærkvöldi í 12. umferð Iceland Express deildarinnar. Leikurinn var fyrir margra sakir áhugaverður, því þetta var fyrsti leikur Gunnars Sverrissonar sem þjálfara og jafnframt fyrsti leikur Mike Jefferson með ÍR, en hann kom til liðsins um síðustu helgi. Lið Njarðvíkur skartaði svo hinum baldna Nick Bradford, þannig að búast mátti við góðri skemmtun.
Leikurinn stóð svo sannarlega undir væntingum. Byrjunarlið ÍR var skipað Hreggviði, Steinari, Kristni, Mike og Sovic. Eiríkur er ann að kljást við meiðsli og var því ekki í leikmannahópnum. Áhorfendur sáu strax að Mike er mjög snöggur og lipur leikmaður og sem leikstjórnandi getur hann náð góðum hraða og flæði í leik liðsins. Virðist sjá alla lausu mennina samtímis. Sovic byrjaði líka vel og leikurinn reyndist hin mesta skemmtun, þar sem bæði lið settu sóknarleikinn í öndvegi. Staðan eftir fyrsta leikhlutann var 21-25 ÍR í vil og í hálfleik voru Njarðvíkingar komnir yfir 45-40.
Í seinni hálfleik héldu Njarðvíkingar forystunni, en ÍR-ingar voru alltaf á hælum þeirra. Leikgleðin og baráttan í fyrirrúmi. Gulli og Ásgeir áttu báðir mjög góða innkomu í leikinn og spennan hélst alveg fram undir lokin, þegar Njarðvíkingar fóru að hitta sem óðir væru lengst utan af velli. Lokatölur 113-93, sem gefa alls ekki rétta mynd af jöfnum leik.
Sovic var stigahæstu okkar manna með 19 stig, en heldur dró af honum þegar leið á leik. Mike setti niður 18 stig og á vafalítið eftir að hleypa krafti í leik liðsins. Gulli var frábær með 16 stig og var að setja niður þrista á ótrúlegum færum, auk sterks varnarleiks. Hreggviður hefur oft átt betri dag, en lauk leik með 15 stig. Steinar skammt á eftir með 14, síðan Ásgeir með sjö og Kristinn fjögur. Hjá Njarðvík dreifðist stigaskor vel, með þá Guðmund og Kristján efsta með 19 stig hvor.
Næsti leikur okkar manna er heimaleikur gegn KR á föstudagskvöldið. Ekki spurning um að allt verður gefið í þann leik. Þar á eftir kemur gríðarlega mikilvægur útileikur gegn Breiðablik á sunnudag kl 17:00 í Smáranum í átta liða úrslitum Bikarkeppni Subway og KKÍ.