Lesa frétt
5.1.2010
Gunnar Sverrisson tekur við þjálfun meistaraflokks
Gunnar Sverrisson hefur verið ráðinn þjálfari
meistaraflokks karla í stað Jóns Arnars Ingvarssonar sem hætti með liðið fyrir
áramót af persónulegum ástæðum. Gunnar er ÍR-ingum að góðu kunnur og hefur
verið virkur í starfi körfuknattleiksdeildarinnar um árabil. Hann æfði og
lék með liðinu upp alla flokka, en á árunum 1994-1996 aðstoðaði hann John
Rhodes við þjálfum meistaraflokksins. Hann var síðan þjálfari Þórs á
Akureyri tímabilið 1997-1998 og svo annar tveggja þjálfara ÍR 2005-2006 (með
Jóni Erni Guðmundssyni). Hann hefur auk þess þjálfað ótalmarga yngri
flokka hjá ÍR og er í vetur yfirþjálfari yngri flokka
körfuknattleiksdeildarinnar. ÍR-ingar eru sannfærðir um að Gunnar sé
rétti maðurinn til að taka við liðinu og óska honum góðs gengis.
Ennfremur eru Jóni Arnari þökkuð góð störf og samskipti sem aldrei hefur borið
skugga á.