Lesa frétt
1.6.2010
Körfuknattleiksdeildin semur við leikmenn

Tveir leikmenn skrifuðu undir samning við körfuknattleiksdeildina um helgina. Nemanja Sovic framlengdi samning sinn um eitt ár og nýr leikmaður kom til félagsins, Níels Dungal. Sovic átti mjög gott tímabil sl vetur og er mikill styrkur í honum fyrir liðið. Níels er uppalinn KR-ingur en hefur leikið með Fjölni undanfarin ár. Níels er fjölhæfur leikmaður sem getur leikið nokkrar stöður á vellinum. Það stefnir allt í það að liðið verðið með góðan og breiðan leikmannahóp fyrir næsta tímabil.
