Lesa frétt
19.4.2010
Úthlutað verður úr Magnúsarsjóði til ÍR -inga mánudaginn 26.apríl kl.18:00

Hægt er að sækja um styrk úr Magnúsarsjóði tvisvar á ári. Nú er komið að fyrri úthlutun þessa árs. Alls bárust fagráðinu 15 umsóknir og hafa þær verið teknar til umfjöllunar. Þjálfarar og afreksfólk innan ÍR sóttu um í sjóðinn að þessu sinni. Úthlutað verður 870.000 kr. Hvetjum við sem flesta til að heiðra þá sem fá úthlutað með nærveru sinni og þiggja veitingar. Athöfnin fer fram í setustofu ÍR heimilis kl.18-19 mánudaginn 26.apríl.