Lesa frétt
6.3.2010
Kærkominn sigur gegn FSu
Það var öllu tjaldað til í kvöld þegar ÍR-ingar mættu FSu í Seljaskóla í 19 umferð Iceland Express deildarinnar í körfubolta. Rándýr kynnir og ljósashow, pizzur á tombóluprís og frítt inn leiddi til þess að áhorfendur flykktust á leikinn og sköpuðu gríðarlega góða stemningu. Greinilega mikil gleði að vera aftur komnir á heimavöllinn okkar í Seljaskólanum. Veran í Kennaraháskólanum í vetur hefur reynst okkur dýrkeypt, því mjög erfitt hefur reynst að viðhalda tengslum meistaraflokksins við yngri flokka og ýmsa gallharða stuðningsmenn.
Okkar menn byrjuðu vel með þá Eika, Steinar, Kristinn, Ásgeir og Jarvis sem byrjunarlið. Mikið skorað hjá báðum liðum framan af og kannski að sama skapi minna um varnir. ÍR-ingar verðskuldað yfir 33-27 eftir fyrsta leikhluta, en annar leikhluti var algjörlega í járnum. Okkar menn höfum 5 stiga forystu í hálfleik 59-54 og hörkuleikur í gangi.
Sama barátta hélst í seinni hálfleik, ÍR-ingum tókst ítrekað að rykkja sér örlítið frá gestunum, en þeir komu alltaf tvíefldir til baka og komu sér inní leikinn. Eftir þrjá leikhluta hafði ÍR um stundarsakir 83-72 yfir, en það átti eftir að hverfa í lokaleikhlutanum, þegar FSu tókst að minnka muninn í fjögur stig 91-87 þegar um 4 mínútur voru eftir af leiknum. Blálokin voru í okkar höndum og sigur hafðist 104-91.
Stigahæstur ÍR-inga var Jarvis með 32 stig og 9 stoðsendingar, Steinar dritaði 19 stigum, Hreggviður sallaði 17, Sovic 13 og Eiríkur 10. Með þessum kærkomna sigri komust ÍR-ingar í 8. sæti deildarinnar og framundan er hörð barátta um sæti í úrslitakeppninni. Næstu tveir leikir eru útileikir gegn Fjölni og Tindastól og lokaleikur mótsins hjá ÍR er heimaleikur gegn Grindavík.