Lesa frétt
19.2.2010
Austur-Þýskalandsheimsókn körfuknattleiksliðs ÍR 1959

Heimasíðunni barst á dögunum skemmtileg frásögn með myndum frá keppnisferð körfuknattleiksliðs ÍR-inga til Leipzig í Austur-Þýskalandi í ágúst 1959. Voru ÍR-ingar þar að endurgjalda heimsókn þýska liðsins DHfH frá Leipzig frá árinu áður. Var það fyrsta erlenda liðið sem kom til Íslands gagngert til keppni, en ÍR-ingar höfðu komist í samband við Þjóðverjana í tengslum við 50 ára afmæli félagsins 1957. Það var einn liðsmanna ÍR úr Þýskalandsferðinni, miðherjinn sterki Guðmundur Þorsteinsson, sem tók saman ferðasöguna og kunnum við honum bestu þakkir fyrir. Það er því við hæfi að birta frásögn hans og myndir hér á heimasíðunni, nú þegar rúm 50 ár eru liðin frá þessari viðburðarríku ferð ÍR-inganna.
Frásögnina og myndaalbúm má finna undir "Körfuknattleiksdeild ÍR" og
hér