Þrátt fyrir góða baráttu ÍR-inga í leiknum gegn Keflavík í Kennó í gærkvöldi tókst ekki að halda sér inni í leiknum til enda, en leiknum lauk með sigri gestanna 84-103. Ýmsir okkar leikmanna áttu þrátt fyrir það prýðisleik, til dæmis Steinar sem var sjóðheitur, spilaði fantagóða vörn á Draelon Burns og setti niður 27 stig í öllum regnbogans litum. Leikurinn var jafn allt fram í miðjan seinni hálfleik eftir góða byrjun ÍR, en þá fóru gestirnir að síga fram úr. Sovic átti einnig prýðisgóðan leik (19 stig, 15 fráköst) sem og Kristinn (13 stig, 7 fráköst). Mike átti fremur slakan leik, sérstaklega var skotnýting hans afar léleg.
Eftir þennan leik eru ÍR-ingar enn í 8. sæti deildarinnar með 10 stig, en liðin í kringum okkur sækja stöðugt á. Nú ríður á að styðja strákana í baráttunni sem framundan er, því allur stuðningur hefur góð áhrif. Mæting á leiki er fremur dræm og þrátt fyrir mikið óhagræði sem fylgir því að spila í íþróttahúsi svo fjarri iðkendunum, má það á engan hátt verða til að strákarnir spili fyrir nánast tómu húsi, leik eftir leik. Þurfum að rífa upp stemninguna. Áfram ÍR!