12.3.2010

Í kvöld föstudaginn 12.mars förum við ÍR-ingar í heimsókn í Grafarvoginn (Dalhús) og spilum við Fjölni. Leikurinn byrjar klukan 19:15. Í seinasta heimaleik var mjög góð stemning og því er um að gera fyrir okkur að fjölmenna á þennan mikilvæga leik og halda áfram þessum góða stuðningi.
FJÖLNIR - ÍR, kl 19:15 Dalhús
ÁFRAM ÍR!
6.3.2010
Það var öllu tjaldað til í kvöld þegar ÍR-ingar mættu FSu í Seljaskóla í 19 umferð Iceland Express deildarinnar í körfubolta. Rándýr kynnir og ljósashow, pizzur á tombóluprís og frítt inn leiddi til þess að áhorfendur flykktust á leikinn og sköpuðu gríðarlega góða stemningu. Greinilega mikil gleði að vera aftur komnir á heimavöllinn okkar í Seljaskólanum. Veran í Kennaraháskólanum í vetur hefur reynst okkur dýrkeypt, því mjög erfitt hefur reynst að viðhalda tengslum meistaraflokksins við yngri flokka og ýmsa gallharða stuðningsmenn.
Okkar menn byrjuðu vel með þá Eika, Steinar, Kristinn, Ásgeir og Jarvis sem byrjunarlið. Mikið skorað hjá báðum liðum framan af og kannski að sama skapi minna um varnir. ÍR-ingar verðskuldað yfir 33-27 eftir fyrsta leikhluta, en annar leikhluti var algjörlega í járnum. Okkar menn höfum 5 stiga forystu í hálfleik 59-54 og hörkuleikur í gangi.
Sama barátta hélst í seinni hálfleik, ÍR-ingum tókst ítrekað að rykkja sér örlítið frá gestunum, en þeir komu alltaf tvíefldir til baka og komu sér inní leikinn. Eftir þrjá leikhluta hafði ÍR um stundarsakir 83-72 yfir, en það átti eftir að hverfa í lokaleikhlutanum, þegar FSu tókst að minnka muninn í fjögur stig 91-87 þegar um 4 mínútur voru eftir af leiknum. Blálokin voru í okkar höndum og sigur hafðist 104-91.
Stigahæstur ÍR-inga var Jarvis með 32 stig og 9 stoðsendingar, Steinar dritaði 19 stigum, Hreggviður sallaði 17, Sovic 13 og Eiríkur 10. Með þessum kærkomna sigri komust ÍR-ingar í 8. sæti deildarinnar og framundan er hörð barátta um sæti í úrslitakeppninni. Næstu tveir leikir eru útileikir gegn Fjölni og Tindastól og lokaleikur mótsins hjá ÍR er heimaleikur gegn Grindavík.
4.3.2010
ALLIR AÐ MÆTA Í SELJASKÓLA OG STYÐJA ÍR
Föstudaginn 5. mars kl.19:15 tekur ÍR á móti FSu í Seljaskóla. Þessi körfuboltaleikur er einn mikilvægasti leikur ÍR á þessu tímabili! Sjá má leikskrá með því að smella hér.
!! FRÍTT inn fyrir alla sem hvetja ÍR!!
Seldar verða pizzur á staðnum.
Pizzasneið og gos 250kr.
2 Pizzusneiðar og gos 400kr.
1.3.2010
Næsti leikur ÍR-inga í Iceland Express deildinni í körfubolta er mikilvægur heimaleikur gegn FSu næstkomandi föstudagskvöld, 5. mars kl 19:15. Þar sem salurinn í Íþróttahúsi kennaraháskólans er tvíbókaður á þessum tíma, hefur leikurinn verið færður í Íþróttahús Seljakóla, á gamla, góða heimavöllinn okkar. Þrátt fyrir að parkett sé enn ekki komið á gólfið þar, ætla menn að láta slag standa og spila leikinn á dúknum. Leikurinn gegn FSU er gríðarlega mikilvægur, því er hvert stig farið að skipta miklu máli í baráttunni. Leikmenn og stjórn skora því á alla stuðningsmenn að fjölmenna í Seljaskólann á föstudagskvöldið og hvetja strákana til sigurs.
1.3.2010
Þrátt fyrir góðan leik og mikla baráttu tókst ÍR-ingum ekki að knýja fram sigur gegn sterki liði Snæfells í gærkvöldi, en leikið var í Stykkishólmi. Lið ÍR skartaði nýjum erlendum leikmanni, Robert Jarvis og stóð hann sig vel, bæði varnar- og sóknarlega. ÍR-ingar voru vel inni í leiknum og höfðu til dæmis 56-57 forystu um miðjan þriðja leikhluta, en alltaf náðu heimamenn að slíta sig frá okkur. Lokatölur 96-86.
Miklu munar um að Hreggviður og Sovic gátu ekki beitt sér að fullu vegna meiðsla, en Jarvis (24 stig), Eiríkur (16 stig), Sovic (16 stig), Steinar (14 stig) voru atkvæðamestir í stigaskorun okkar manna. Sem stendur eru ÍR-ingar í 9. Sæti deildarinnar og framundan eru leikir gegn FGU, Fjölni og Tindastól.
19.2.2010
Heimasíðunni barst á dögunum skemmtileg frásögn með myndum frá keppnisferð körfuknattleiksliðs ÍR-inga til Leipzig í Austur-Þýskalandi í ágúst 1959. Voru ÍR-ingar þar að endurgjalda heimsókn þýska liðsins DHfH frá Leipzig frá árinu áður. Var það fyrsta erlenda liðið sem kom til Íslands gagngert til keppni, en ÍR-ingar höfðu komist í samband við Þjóðverjana í tengslum við 50 ára afmæli félagsins 1957.
16.2.2010
Að undanförnu hefur verið unnið að breytingum hér á heimasíðu ÍR. Þessar breytingar
felast meðal annars aðgengilegri skiptimarkaði og athugasemdakerfi.
15.2.2010
Þrátt fyrir góða baráttu ÍR-inga í leiknum gegn Keflavík í Kennó í gærkvöldi tókst ekki að halda sér inni í leiknum til enda, en leiknum lauk með sigri gestanna 84-103. Ýmsir okkar leikmanna áttu þrátt fyrir það prýðisleik, til dæmis Steinar sem var sjóðheitur, spilaði fantagóða vörn á Draelon Burns og setti niður 27 stig í öllum regnbogans litum. Leikurinn var jafn allt fram í miðjan seinni hálfleik eftir góða byrjun ÍR, en þá fóru gestirnir að síga fram úr. Sovic átti einnig prýðisgóðan leik (19 stig, 15 fráköst) sem og Kristinn (13 stig, 7 fráköst). Mike átti fremur slakan leik, sérstaklega var skotnýting hans afar léleg.
Eftir þennan leik eru ÍR-ingar enn í 8. sæti deildarinnar með 10 stig, en liðin í kringum okkur sækja stöðugt á. Nú ríður á að styðja strákana í baráttunni sem framundan er, því allur stuðningur hefur góð áhrif. Mæting á leiki er fremur dræm og þrátt fyrir mikið óhagræði sem fylgir því að spila í íþróttahúsi svo fjarri iðkendunum, má það á engan hátt verða til að strákarnir spili fyrir nánast tómu húsi, leik eftir leik. Þurfum að rífa upp stemninguna. Áfram ÍR!