Lesa frétt
16.1.2012
Afmælismót JSÍ yngri en 20 ára
Laugadaginn 14 janúar fór fram afmælismót JSÍ yngri en 20 ára. Frá ÍR fóru 12 keppendur en 2 frá systurklúbbnum JG. ÍR-ingar unnu 3 gull, 4 silfur og 1 bronsverðlaun, en JG-ingar 1 verðlaun. Birna Stefánsdóttir ÍR-ingur vann gullverðlaun í -32 kg flokki. ÍR-ingar unnu tvöfalt í -73 kg flokki þar sem Gísli Haraldsson vann gullverðlaun og Benidikt Guðmundsson vann siflur. Þar urðu ÍR-ingar einnig í 4 og 5 sæti. Einnig vann Kjartan Magnússon - 66 kg flokkin auk þess vann Þorsteinn Hjörleifsson Bronsverðlaun í sama flokki. ÍR-ingar voru langsterkasti aðilin í aldurhópnum - 19 ára.