Lesa frétt
21.12.2009

Skiptimarkaður

ÍR hefur komið á laggirnar skiptimarkaði hér á heimasíðunni. Neðst í vinstra tréi undir hverri deild má sjá skiptimarkaðinn. Til að auglýsa eða óska eftir vörum, búnaði eða öðru tengdu viðkomandi íþróttagrein þarf að senda póst á markaðsfulltrúa ÍR, ingolfur@irsida.is.
Vonast ÍR til að þessu framtaki verði vel tekið og geri ÍR-ingum kleift að nálgast ódýran íþróttavarning.