Lesa frétt
21.1.2009

Gísli, Kjartan og Björn slógu í gegn á RIG

Reykjavík International Games fór fram laugardaginn 17.janúar.  Framkvæmd og skipulag voru Júdódeild Ármanns til mikillar prýði. Gísli Haraldsson (ÍR) átti stórkostlegt mót og sigraði allar sínar glímur í -60 kg flokki. Harðasta glíma hans var við Kjartan Magnússon, félaga sinn úr ÍR.  Kjartan lenti í þriðja sæti.  Gísli og Kjartan sýndu frábærar glímur og sýndu í verki hversu langt góðar  æfingar skila iðkendum.  Báðir hafa lagt gríðarlega á sig við æfingar og eru staðráðnir í að vinna fyrir sínum árangri.
Björn Halldór Óskarsson ÍR lenti í 2. sæti í flokki -66 kg.  Björn er að koma til baka eftir langt hlé og sýndi bráðskemmtilega takta og sannaði að þó keppnisformið sé ekki komið í fyrra horf að hann hefur engu gleymt.  Endurkoma Björns vakti athygli, enda lengi verið meðal efnilegustu Júdóiðkenda landsins.  Með einbeittum æfingum ná þessir þrír ofantöldu iðkendur fljótt inn í landslið.
Hlynur Hansson sýndi miklar framfarir í +100 kg flokknum.  Óvenju vel var mannað í þeim flokki og keppni þar óvenju skemmtileg.  Hlynur kláraði allar sínar glímur með miklum krafti þrátt fyrir meiðsli í öxl.
Allir keppendur ÍR báru hróður félagsins út með miklum sóma, með skýrum skilaboðum um að yngsta félagið í Júdóinu er mætt til keppni til að krefjast titla.  Áður mörkuð leið deildarinnar um heimaræktaðann árangur  fékk skýra sönnun á RIG.  Áfram ÍR !