Lesa frétt
30.11.2009
Gull í Hilleröd - Frábær árangur ÍR í Júdó
Gull í Hilleröd - Frábær árangur ÍR í Júdó.
ÍR sótti Gull og aðra góðmálma í greipar Dana á Alþjóðlegu móti í Hilleröd um síðustu helgi,
þegar Gísli Haraldsson vann sinn flokk glæsilega svo athygli vakti.
Gísli var þó ekki einn í að bera hróður ÍR út fyrir landsteinana, því
Ásdís Ólafsdóttir fékk Bronsverðlaun í opnum flokki stúlkna.
Kjartan Magnússon, sýndi einstakt keppnisskap, eftir að hafa tapað fyrstu glímu sinni
á móti endanlegum sigurvegara flokksins. Kjartan lagði tvo næstu andstæðinga sína
glæsilega í afar erfiðum glímum.
Árangur þessara hugprúðu ÍR-inga er deildinni mikil hvatning, því væntingar voru skotnar
í bólakaf. Áherslur þjálfara deildarinnar á breiðari grunn, en almennt gengur og gerist er
að skila glæsilegum glímum og snúa íþróttinni nær upphaflegum áherslum hennar.
Mótið sem státaði ekki bara keppendum frá öllum norðurlandaþjóðunum, heldur einnig
keppendum frá Þýskalandi, Póllandi, Frakklandi og Japan.