Lesa frétt
4.11.2009

Æfingar falla niður á föstudag, förum á skauta í staðinn.

Kæri iðkandi.

Næstkomandi föstudag (06.11.) falla niður æfingar hjá okkur í Júdódeildinni vegna æfingabúða hjá félögum okkar í Taekwondo. Í stað þess að sitja auðum höndum datt okkur í hug að fara saman á skauta og borða saman pizzu á eftir. Hver og einn þarf þó að standa straum af þeim kostnaði.

Við munum hittast á föstudaginn í Skautahöllinni í Laugardal, Múlavegi 1, kl.17:30. Það kostar 800 kr. fyrir börn (aðgangur og skautaleiga) en fyrir þá sem eiga skauta, þá kostar500 kr. inn. Ef við verðum fleiri en 20 þá kostar 700 kr. á manninn.

Að skautaferðinni lokinni (um kl. 19:00-19:30) förum við á Eldsmiðjuna, Suðurlandsbraut 12 og fáum okkur gómsæta pizzu. Til að hafa verðhugmynd þá kostar 10" pizza frá 920 kr. til 1665 kr. 12" pizza frá 1150 kr. til 1870 kr. 16" pizza frá 1485 kr. ilt 2740 kr. og gos 245 kr. Við erum þó enn að bíða eftir tilboði fyrir hópinn okkar, verðið veltur á fjölda. Við ættum að vera búin ekki seinna en kl. 21:00.

Við vonum að þú sjáir þér fært að mæta og eiga með okkur skemmtilega kvöldstund.