Lesa frétt
30.3.2009

Samningur við Sporthúsið

Á dögunum var undirritaður samningur við Sporthúsið en sá samningur gefur iðkendum ÍR (14 ára og eldri) tækifæri á að fá þar mánaðarkort gegn mjög vægu gjaldi.
Aðalstjórn mun styrkja deildir um ákveðna upphæð á þessu ári en ÍR fékk styrk frá ÍTR þar sem aðstaða okkar er ekki eins góð og hjá mörgum félögum í borginni hvað þessa þjónustu varðar.

Allar umsóknir um styrk frá aðalstjórn þurfa að fara í gegnum Hörð framkvæmdastjóra og mun hann jafnframt fylgjast með því að þeir sem fá kort noti þau markvisst.

Ekki er hægt að kaupa kort og selja þau síðan áfram í fjáröflunarskyni. Þeir aðilar sem sækja um verða að nota kortin. Best er að deildir sæki um fyrir sína iðkendur.

Ef einhverjar spurningar vakna hjá ykkur hvað þetta varðar er um að gera að hafa samband við undirritaðan

Hörður Heiðar Guðbjörnsson
Framkvæmdastjóri ÍR