Lesa frétt
25.3.2009

Lokadagur heilsuátaks ÍR - Grillveisla og hádegisfundur um mikilvægi jákvæðs hugarfars

ÍR býður öllum Breiðhyltingum og velunnurum í GRILLVEISLU fimmtudaginn 26.mars milli kl. 17 og 18. Íþróttamenn ÍR og körfuknattleiksmennirnir Sveinbjörn Claessen og Hreggviður Magnússon munu GRILLA í mannskapnum á meðan þeir grilla ofan í liðið !?!?
Strax að grillveislunni lokinni eða kl. 18 munu ÍR og Selfoss leika í Lengjubikar karla í knattspyrnu.

Föstudaginn 27.mars verður ÍR með hádegisfund í ÍR heimilinu milli kl. 12 og 13 þar sem Helgi Rúnar Óskarsson mun fara yfir mikilvægi jákvæðs hugarfars. Sjá nánar hér.