Lesa frétt
30.4.2010

Stór dagur fyrir ÍR

Í dag þann 30. apríl opnar ÍR nýjan vef en það er www.ir.is

Við hjá ÍR höfum lengi haft augastað á þessu veffangi en það var í eigu Iðnskólans í Reykjavík. Þegar Tækniskólinn varð til skiptu þeir um veffang og gáfu af sinni góðmennsku þetta veffang til okkar sem við höfum lengi reynt að fá.

Við viljum færa Tækniskólanum miklar þakkir og nú þurfa ÍR-ingar  sem og aðrir ekki að eiga í erfiðleikum með að muna veffang Íþróttafélags Reykjavíkur.

Þess má geta að þeir sem vilja kynnast Tækniskólanum geta farið inná heimasíðu þeirra en hér til hliðar er logo þeirra sem færir ykkur beint inná heimasíðu skólans.