Lesa frétt
29.3.2010
Íslandsmeistaramót og kvöldgleði
Helgina 10-11. apríl verður haldið Íslandsmeistaramót í júdó í Laugardalshöll og verður keppt í bæði einstaklings- og sveitakeppnni. Skráningu á mótið líkur á miðvikudaginn næstkomandi.
Fleiri upplýsingar um næstu mót er hægt að sjá á mótaskrá JSÍ:
http://www.jsi.is/images/stories/pdf/motaskra/Motaskra_2010.pdf
Eftir æfingu á miðvikudaginn næsta ætlum við að gera okkur glaðan dag og fara saman út að borða á ítalska veitingahúsinu Horninu, sem er staðsett í Hafnarstræti 15. Við verðum með hópsalinn Djúpið sem er í kjallara staðarins og fyrir þá sem komast ekki á æfingu á miðvikudaginn næsta, þá er planið að hittast um 21:00. Matseðil og upplýsingar um staðinn er hægt að skoða á
http://www.hornid.is/Hornid/Horni.html. Þeir sem hafa ekki náð aldri þurfa að fá leyfi frá foreldrum eða forráðamönnum. Sjáumst hress og kát á miðvikudaginn!