ÍR
Forsíða
Dans
Frjálsar
Handbolti
Judo
Karfa
Keila
Knattspyrna
Skíði
Taekwondo
Fréttir
Júdódeild ÍR
Þjálfarar
Flokkar / Hópar
Pistlar
Tenglar
MYNDASAFN
Skiptimarkaður
flga2
English
flag4
flag5
flag6
Lesa frétt
1.2.2009
ÍR sótti 4 Gull, 5 Silfur og 2 Brons á Afmælismóti JSÍ (24.+25.janúar)
Afmælismót JSÍ var haldið um helgina 24. og 25. janúnar. Frábært og fjölmennt mót var háð bæði í húsakynnum Júdódeildar Ármanns og Júdófélags Reykjavíkur. Einstaklega góður andi ríkti á mótinu og keppendur sem flestir þekkjast orðið ágætlega á vellinum og á hliðarlínunni áttu góðar stundur saman. ÍR'ingar, sem mættu með drengskap og vilja til verka, stóð svo sannarlega undir ört vaxandi væntingum. Sérlega skemmtilegur árangur er að vaxa í Skógarselinu og starf hins frábæra aðalþjálfara Júdódeildarinnar
Björns H. Halldórssonar
er að bera ríkulegan ávöxt.
Mynd :
2. sæti Rihard Jansens (JDÁ), 1. sæti Björn H. Óskarsson (ÍR), 3. sæti Ægir (?) (JR)
Björn Halldór Óskarsson
tók þetta firna sterka mót með miklum glæsibrag. Í þetta sinnið nægði honum ekkert minna er
Gull
í -66 kg flokkinum. Hann sigraði alla sína anstæðinga með miklu öryggi. Það var frábær upplifun fyrir áhorfendur að verða vitni að svona
Mynd :
f.v. 2. sæti Kjartan Magnússon (ÍR), 1. sæti Gísli Haraldsson (ÍR), 3. sæti Orri Helgason (JR)
Gísli Haraldsson
átti stórkostlegt mót og
sigraði allar sínar glímur og vann
Gull
í -60 kg flokki í flokki 15-16 ára. Bestu keppendur landsins mættu til að setja sitt mark. Gísli lét alla viðstadda vita að hann ætlar sér að ná langt...mjög langt í íþróttinni. Harðasti andstæðingur Gísla var sem fyrr félagi hans úr ÍR Kjartan Magnússon.
Kjartan tók til sín
Silfur
, enn staðráðin í að vera Gísla enginn eftirbátur. Kjartan hefur með einbeittri tækni sinni siglt örugglega í fresmtu röð iðkenda íþróttarinnar.
Frábær frammistaða
Tómasar Kristbergssonar
undirstrikaði styrk hans skemmtilega í erfiðum -81 kg flokkinum. Tómas fékk að kljást við margreynda keppnismenn, sem fengu óvænt sterkari andstæðing en þeir reiknuðu með, því þetta var fyrsta mót Tómasar. Sé þetta vísir að því sem koma skal, þá er margs að vænta af honum.
Bernhard Jóhannesson
sótti sér
Silfur
í erfiðum flokki +90 kg 15-19 ára.
Ásdís Ólafsdóttir
kom ekki metnaðarlaus frekar en venjulega og stóð sig með stakri prýði og
tók heim með sér
Silfur
í 15-16 ára.
Ingunn Rut Sigurðardóttir
tryggði sér
Gull
í -50 kg í 13-14 ára, sem hún þó var færð upp í, með glæsilegu Harai Goshi kasti.
Ragnhildur Rún Vilmundardóttir
fékk
Brons
í -42 kg 15-16 ára.
Benedikt Haukur Guðmundsson
fékk
Silfur
í -60 kg 13-14 ára og sýndi góðan stíganda í mótinu.
Halldór Reynisson
stóð sig sérlega vel og staðfesti að góð ástundun skilar árangri.
Stoltur tók hann til sín
Brons
í erfiðum flokki 11-12 ára -46 kg.
Janus Grétarsson
sótti
Gull
þó hann væri færður upp úr -38 kg í blandaðann flokk barna 11-12 ára -44 kg
Aníta Ýr Ómarsdóttir
Silfur
í blönduðum flokki -44 kg 11-12 ára
Viktor Bjarki Ómarsson
kom líka með tilkall til árangurs og átti sérlega skemmtileg tilþrif í -38 kg
ÍR hefur enn á ný sýnt eldri félögunum vaxandi mótstöðu og undirstrikað metnað sinn til árangur.
Áfram ÍR'ingar.
« Til baka
Viðburðir í judo
Ýmislegt
Upplýsingarit ÍR 2009
Íþróttafélag Reykjavíkur | Skógarseli 12 | 109 Reykjavík
Sími 587 7080 | Fax 587 7081 | Netfang: elfa@irsida.is
Skrifstofan er opin all virka daga kl. 10-16
ÍR heimilið er opið virka daga kl: 8-22, laugard. kl. 9:30-15 og sunnud. 11-15:30