Fréttir
18.1.2012

RIG mótið

Reykjavík International Games mótið fer fram laugardaginn 21. janúar í húsakynnum Júdódeildar Ármans.   Allar nánari upplýsingar á þessum tengli.
http://judo.is/wp-content/uploads/2010/09/RIG-2012.pdf
Ásgeir
16.1.2012

Afmælismót JSÍ yngri en 20 ára

Laugadaginn 14 janúar fór fram afmælismót JSÍ yngri en 20 ára.  Frá ÍR fóru 12 keppendur en 2 frá systurklúbbnum JG.  ÍR-ingar unnu 3 gull, 4 silfur og 1 bronsverðlaun, en JG-ingar 1 verðlaun.  Birna Stefánsdóttir ÍR-ingur vann gullverðlaun í -32 kg flokki.  ÍR-ingar unnu tvöfalt í -73 kg flokki þar sem Gísli Haraldsson vann gullverðlaun og Benidikt Guðmundsson vann siflur.  Þar urðu ÍR-ingar einnig í 4 og 5 sæti.  Einnig vann Kjartan Magnússon - 66 kg flokkin auk þess vann Þorsteinn Hjörleifsson Bronsverðlaun í sama flokki.  ÍR-ingar voru langsterkasti aðilin í aldurhópnum - 19 ára.

16.1.2012

Kjör á Íþróttamanni og Íþróttakonu ÍR fyrir árið 2011

Sunnudaginn 22.janúar kl.13:00 fer fram kjör á íþróttamanni- og konu ÍR fyrir árið 2011. Einnig verða kjörnar bestu íþróttakonur og íþróttamenn allra deilda félagsins. Kjör þetta verður það 20. í röðinni og fer fram með viðhöfn í ÍR-heimilinu, 2.hæð.
Léttar veitingar verða í boði og eru allir velkomnir.
Við hvetjum ÍR-inga og aðra velunnara félagsins til þess að mæta og heiðra þetta frábæra íþróttafólk.
8.1.2012

Þorrafagnaður ÍR

Þann 28 janúar, sama dag og afmælismót JSÍ verður Þorrafagnaður ÍR.  Allir Júdómenn 18 ára og eldri eru velkomnir.  Nánari upplýsingar á þessum tengli.
http://ir.is/UmIR/Thorrafagnadur/
Ásgeir
5.1.2012

Skráning iðkenda komin á fullt

Núna eru æfingar að hefjast aftur eftir jólafrí og hægt er að skrá og borga á námskeiðin á skráningarsíðu okkar ( muna samþykkja skilmála fyrst ).

Greiðslur með Frístundakorti eru samtengdar kerfinu svo að það er létt mál að ráðstafa styrknum og fara svo aftur inní skráningarsíðuna og haka aftur við Frístundakortið og klára greiðsluferlið.

Greiðslur með kreditkorti og Frístundakorti gerið þið sjálf.  Ef greiða á með öðrum hætti þarf að hafa samband við skrifstofu ÍR á skrifstofutíma kl. 10:00 – 16:00 s. 587 7080 / 587 7090.

Mjög góðar leiðbeiningar um skráningarferlið eru á heimsíðu ÍR.

 

Sérstakur skráningardagur fyrir þau ykkar sem þurfið aðstoð við skráningu verður hér í ÍR heimilinu í 16. janúar kl. 18 – 20.

 

Foreldrar, fjölmennum svo á hinn margumtalaða Þorrafagnað sem haldinn verður í Íþróttahúsi Seljaskóla 28. janúar n.k.  Frábærir skemmtikraftar halda uppi fjörinu og maturinn frá Múlakaffi klikkar ekki.

Við hvetjum alla foreldra til að taka kvöldið frá og skemmta sér í góðum hópi ÍR - inga.

ATH. 18 ára aldurstakmark.

 

 

Mjög mikilvægt er að gengið sé sem fyrst frá skráningu, ef ekki er búið að ganga frá skráningu er ekki mögulegt að skrá viðkomandi iðkenda á mætingalista eða taka þátt í keppni á vegum félagsins.  Vinsamleg tilmæli til forráðamanna eru að skrá iðkendur fyrir 20. janúar nk.  

3.1.2012

Vorönn 2012

Nú eru að hefjast æfingar eftir jólafrí.  Æfingar hefjast hjá aldurshópnum 15 ára og eldri miðvikudagin 4. janúar.  Hjá öllum yngri aldurshópum hefjast æfingar mánudagin 9. janúar samkvæmt stundarskrá. 

Ásgeir
30.12.2011

Bréf til ÍR inga frá formanni aðalstjórnar.

Árið 2011 sem senn er á enda hefur verið viðburðarríkt í starfi Íþróttafélags Reykjavíkur.  Félagið okkar á sér lengsta sögu íþróttafélaga á Íslandi með samfellda starfsemi frá stofnun þess árið 1907 og náði því 104 ára aldri á árinu og 105 ára afmæli í sjónmáli í mars næst komandi.  Níu deildir eru starfandi innan félagsins, fjöldi iðkenda var um 2300 á árinu og er fjöldi félagsmanna um 5000, það þarf því ekki að velkjast í vafa um umfang starfseminnar.  Þetta gerir félagið okkar að einu stærsta íþróttafélagi landsins.  

Reksturinn og umhverfið
Rekstrarumhverfi íþróttafélaga er með erfiðasta móti um þessar mundir þar sem minni fjármunir koma frá Reykjavíkurborg og atvinnufyrirtæki eru síður aflögufær.  Á slíkum tímum er okkur hollt að rifja upp söguna, sérstaklega með hvað hætti félagar okkar byggðu upp starfið á síðustu öld, með fórnfýsi, samstöðu og dugnað að vopni. 
18.12.2011

Jólafrí

Júdódeildin hélt upp á litlu jólin föstudaginn 16. desember með sameiginlegri æfingu, sýningu og smá jólaveislu.  Á sameiginlega æfingu var mjög góð mæting, einnig var mikill fjöldi áhorfenda.  Eftir nokkrar glímur sýndu þeir Gísli og Kjartan Nage-no-kata.  Kjartan lék þar árásaraðila og kastaði Gísli honum glæsilega hvað eftir annað.  Björn og Kjartan sýndu Goshin Jutsu sem er sjálfsvarnarkata.  Þar lék Kjartan aftur árásaraðilan og var honum kastað með tilþrifum hvað eftir annað.  Það mun hafa heyrst frá ungum áhorfendum athugasemdir eins og "mikið er þessi gamli sterkur".  Í lokin sýndu þeir Jörgen og Kjartan nokkur Jujutsu brögð.  Þar var Kjartan aftur árásarmaður og fékk hann að finna fyrir margskonar brögðum.  Eftir sýninguna var gestum boðið upp á veitingar.  Nú er deildin komin í jólafrí og byrja æfingar aftur miðvikudaginn 4 janúar. 

Gleðileg jól.

Ásgeir
11.12.2011

Jólagleði Júdódeildar

Jólagleði Júdódeildar ÍR

Föstudaginn 16. desember frá  klukkan 17 til 19 verður sameiginleg æfing allra aldursflokka í Júdó.  Þeir Gísli og Kjartan munu sýna Nage-no-kata og Björn þjálfari sýnir Gosin jutsu sem er sjálfsvarnarkata.  Einnig mun Jörgen sýna nokkur Jujitsu brögð. Kaffi, gos og kakó verður á staðnum en þeir sem ætla að mæta eru vinsamlegast beðnir að koma með eitthvað góðgæti á sameiginlegt kaffihlaðborð.