Reykjavíkurmót 2.-6. fl.
Reykjavíkurmót yngri flokka 2011
Reykjavíkurmót yngri flokka í handknattleik verða haldin nú í haust með svipuðu sniði og undanfarin ár.
Mótunum verður raðað eftir fjölda liða hverju sinni og verður keppt skv. sömu aldurskiptingu og HSÍ.
Skipta skal 5. og 6. flokki í yngra og eldri en ekki leika í A, B og C liðum.
Lengd leikja skal vera 2*10 min í 6.fl, 2*15 min í 5.flokki, 2*20 min í 4.fl og 2*25 í 3. og 2.fl.
Lágmarksfjöldi liða í riðli er 3 lið. Ef þátttökulið eru færri en 6 skal leika í einum riðli.
Leikið er til þrauta þá daga sem mótið er fyrirhugað og klárast hvert mót hjá umsjónaraðila. Leika skal um 3. efstu sætin.
Hvert mót er alfarið í höndum umsjónarfélaga, en félögin verða að sjá um alla umsjón í kringum mótið auk þess að útvega dómara, tímaverði og ritara. Þáttökugjöld eru engin og útvegar HKRR verðlaun.
Niðurröðun riðlakeppninnar er eftirfarandi:
2. flokkur karla 23.-25. sept. Fram
3. flokkur karla 16.-18. sept. Valur
3. flokkur kvenna 16.-18. sept. Valur
4. flokkur karla 23.-25. sept. ÍR
4. flokkur kvenna 23.-25. sept. Fylkir
5. flokkur karla 16.-18. sept. Víkingur
5. flokkur kvenna 16.-18. sept. Fjölnir
6. flokkur karla 23.-25. sept. Þróttur
6. flokkur kvenna 23.-25. sept. KR
HSÍ
