9.10.2011

5. flokkur kvenna á yngra ári náði flottum árangri á fyrstu keppnishelginni á Íslandsmótinu, sem fram fór að þessu sinni í Mýrinni í Garðabænum dagana 7.-8. október. A liðið hafnaði í öðru sæti í 1. deild A liða og B liðið hafnaði í þriðja sæti í sinum riðli.
A liðið mætti helstu keppinautum sínum í Fram í fyrsta leik og lauk honum með sigri Fram, 11-9 í mjög jöfnum leik. Þá næst vann A liðið Stjörnuna og Gróttu en missteig sig lítillega og tapaði naumlega gegn Afturlendingu. Það tap kom ekki að sök því liðið lagði ÍBV í lokaleiknum og náði öðru sæti á eftir Fram.
B liðið, sem fékk liðstyrk úr 6. flokki, stóð sig líka mjög vel og lauk keppni í þriðja sæti.
ÍR stelpurnar í A og B liðum voru þar fyrir utan til fyrirmyndar utan vallar og voru félagi sínu til mikilla sóma.
Glæsilegur árangur hjá flottum stelpum sem eru sífellt að bæta sig.
29.6.2011

Íþróttaskólinn er starfræktur á veturna, frá septemberbyrjun og fram í miðjan maí. Um er að þrjá hópa (tvo 3-4 ára og einn 5-6 ára). Einn hópur er á laugardagsmorgnum en hinir tvo seinniparta í miðri viku. Hver tími er 45 mínútur. Aðstaðan er í íþróttasal að Skógarseli 12, 109 Reykjavík.
Í Íþróttaskólanum reyna börn á jafnvægi, fín- og grófhreyfingar, samhæfingu og líkamlegan þroska sem og félagslegan. Þau læra að bera virðingu fyrir öðrum og vinna saman. Skynfærin þarf einnig að örva og samhæfa og í leikfimi sem þessari reynir á þau öll. Nánari upplýsingar veitir Sigrún íþróttafulltrúi ÍR í síma 864-0061 eða
sigrun@ir.is
23.6.2011
Dagskrá á svæði ÍR 23.júní
Hlaup kl.16:00-16:30
Allir hlaupa í hóp á eftir kyndilbera. Fyrstur kemur kyndilberi, svo iðkendur í keppnisbúningum og aftast kemur almenningur.
Íþróttastöðvar kl.16:30-18:00
Dans, Júdó, Frjálsar, Karfa, Fótbolti, Handbolti, Keila, Skíði, TKD
Þeir sem geta mæta í þeim galla sem einkennir þeirra íþrótt. Við viljum sjá skíðahjálminn, danskjólinn, handboltann, legghlífarnar, hvíta gallann, gaddaskóna um hálsinn, körfubolinn og hvað eina. Eins viljum við sjá sem flesta úr hverfinu, unga sem aldna.
Ath. allir sem taka þátt á íþróttastöðvunum, fá viðurkenningu fyrir þátttöku og vatnsbrúsa að gjöf.
20.6.2011

Alþjóðlegi Ólympíudagurinn verður haldinn hátíðlegur um allan heim þann 23. júní. Þennan dag var Alþjóðaólympíunefndin stofnuð árið 1894 og ætlar ÍR að gera sitt í því að vekja athygli á leikunum.
Dagskrá á svæði ÍR 23.júní
Hlaup kl.16:00-16:30
Allir hlaupa í hóp á eftir kyndilbera. Fyrstur kemur kyndilberi, svo iðkendur í keppnisbúningum og aftast kemur almenningur.
Íþróttastöðvar kl.16:30-18:00
Dans, Júdó, Frjálsar, Karfa, Fótbolti, Handbolti, Keila, Skíði, TKD
Allir krakkar eru hvattir til að mæta í ÍR klæðnaði og þau sem eru að keppa með ÍR mæti í sínum einkennisfatnaði, því meira því betra. Við viljum sjá skíðahjálminn, danskjólinn, handboltann, legghlífarnar, hvíta gallann, gaddaskóna um hálsinn, körfubolinn og hvað eina. Eins viljum við sjá sem flesta úr hverfinu, unga sem aldna.
Ath. allir sem taka þátt á íþróttastöðvunum, fá viðurkenningu fyrir þátttöku.
10.5.2011
Uppskeruhátíðin verður í íþróttahúsinu Seljaskóla laugardaginn 14. maí kl. 12:00. Verðlaunaafhendingar og viðurkenningar fyrir keppnistímabilið 2010/2011. Grillaðar pylsur og drykkir í boði handknattleiksdeildar ÍR, sem meistaraflokkar kvenna og karla munu grilla og framreiða á meistaralegan hátt! Einnig verður selt Candy Floss og merktar vörur t.d. lyklakippur til styrktar ÍR. Eftir kl. 20:30 um kvöldið er opið hús í ÍR heimilinu þar sem verða léttar veitingar. ALLIR VELKOMNIR vonumst til að sjá sem flesta.
13.4.2011

Á sunnudaginn spila strákarnir í meistaraflokk ÍR í handbolta við Stjörnuna. Þetta er fyrsti leikurinn í umspilinu um að komast upp í efstu deild og því er ekki mikið í húfi, heldur allt! Eins og áður segir verður leikurinn á sunnudaginn (17.apríl) í Austurbergi og byrjar kl.19:30.
Strákarnir hafa spilað hreint út sagt frábærlega í vetur undir stjórn Bjarka Sigurðssonar, sem hefur náð öllu því besta úr liðnu. Liðið endaði í öðru sæti en Stjarnan í því þriðja. Nú er svo komið að strákarnir þurfa á ÞÍNUM stuðningi að halda. Mætum í Austurberg á sunnudaginn, klædd í hvítu og bláu og styðjum strákana til sigurs!
ÍR – Stjarnan kl.19:30 í Austurbergi sunnudaginn 17.apríl – ÁFRAM ÍR!
21.3.2011
Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins.
3. Rekstrar- og efnahagsreikningar fyrir árið 2010.
4. Starfs- og fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
5. Kosning formanns.
6. Kosning annarra stjórnarmanna.
7. Kosning fulltrúa og varafulltrúa á aðalfund félagsins.
8. Ákveðið æfingargjöld.
9. Önnur mál.
Stjórnin.
7.12.2010
Handknattleiksdeild ÍR verður með handbolta Akasemíu um jól og áramót iðkendum í 6fl - 4.fl verðuð boðið að taka þátt í Akademíu þar sem lögð verður áhersla á einstaklingsþjálfunn, þetta er fyrsta skrefið hjá okkur í að setja handboltan hjá ÍR framar því við ætlum að vera í fremstu röð eftir örfá ár bæði í karla og kvenna boltannum.
2.12.2010

Á mánudaginn (6.des) er stórleikur í handbolta en þá spila strákarnir í meistaraflokk ÍR við FH í Austurbergi kl.19:30. ÍR-ingar hafa verð á miklu flugi í 1.deild og eru öðru sæti. Lið FH er gríðarlega sterkt með menn eins og Loga Geirsson og Ólaf Guðmundsson í broddi fylkingar.
Það er gríðarlega mikilvægt að sem flestir mæti á leikinn og styðji ÍR. FH er með gott lið en með stuðningi áhorfenda er allt mögulegt. Mætum á völlinn..... þinn stuðningur skiptir máli.
ÁFRAM ÍR