Parameter not supplied ÍR – Íþróttafélag Reykjavíkur



 

 





 




Fréttir
18.5.2012

Jón Heiðar Gunnarsson gengur til liðs við íR.

jonheidar

Handknattleiksdeild ÍR hefur gert tveggja ára samning við línumanninn og varnartröllið Jón Heiðar Gunnarsson um að leika með félaginu. Jón er ÍR-ingum að góðu kunnur því að hann lék með liðinu keppnistímabilið 2006 – 2007. Hann hefur undanfarin tvö ár leikið með Pays d'Aix Handball Club í Suður-Frakklandi en það lið vann einmitt Frönsku 1. deildina í síðustu viku. Jóni bauðst að leika áfram á meginlandinu en ákvað að nú væri hentugasti tíminn til að flytjast til íslands. Eiginkona hans hefur fengið gott starf á Íslandi og börnin á góðum aldri til breytinga. 
Við bjóðum Jón Heiðar velkominn aftur í ÍR

18.5.2012

Uppskeruhátíð - Yngri flokkar ÍR Handbolta í Austurbergi 19. maí kl. 12:00

Uppskeruhátíð yngri flokka ÍR Handbolta verður laugardaginn 19. maí kl. 12:00 í Austurbergi.

Halldór kórstjóri Fjallabræðra verður hjá okkur fyrir upptöku á þjóðlagi Fjallabræðra, en Halldór fer nú um landið og safnar röddum í þetta lag og er takmarkið 30.000 manns og þar á meðal verður ÍR-kórinn okkar. 

Dagskrá er þétt, þar sem byrjað verður á upptöku á lagi og síðan verða verðlaunaafhendingar flokkanna í framhaldi af því og við endum síðan á því að grilla og opna niður í "Undirheima"og leyfa ykkur skoða þar niðri.   En "Undirheimar" eru tæplega 600fm og þar verður ný félagsaðstaða ÍR Handbolta næsta vetur undir Austurbergi . 

Þannig að allir eiga að vera mættir stundvíslega klukkan 12:00 í Austurberg á morgun ( lau.19.maí ) á Uppsekruhátíð yngri flokka  Grill og Gaman í Austurbergi !!!!!!!!!!
  
Það verður síðan hægt að fylgjast með okkur á RUV í sumar í þættinum "Gulli Byggir 2 - Undirheimar" þar sem við tökum allt í gegn þar niðri með krökkunum okkar í ÍR Handbolta og byggjum okkar aðstöðu sjálf.
18.5.2012

Brynhildur og Sigrún valdar í úrtakshóp U-16 ára landslið kvenna

Landsliðsþjálfarar  Díana Guðjónsdóttir og Unnur Sigmarsdóttir hafa valið úrtakshóp fyrir  u-16 ára landslið kvenna og mun liðið æfa helgina 1.-3. júní í Mýrinni í Garðabæ. 
ÍR á tvo flotta fulltrúa í þessum hóp, en það eru þær Brynhildur Bergm Kjartansdóttir og Sigrún Ása Ásgrímsdóttir.


 Til hamingju stelpur og gangi ykkur vel!!!
Sjá nánar á vef HSÍ

17.5.2012

Handboltaskóli ÍR,Bjarna Fritz og Stulla

Handboltaskóli ÍR Banner

 

Bjarni Fritz var í heimsókn hjá þjálfara ársins Degi Sigurðssyni í Fuchse Berlin, í smá þjálfara kennslu og kemur með kollinn fullan af nýjum æfingum og hugmyndum :)

 

Æfingatímar eru eftirfarandi:
 11-12 ára(00-01) kl. 10.00-12.00
13-14 ára(98-99) kl. 13.00-15.00
15-16 ára(96-97) kl. 15.00-17.00
14.5.2012

Handknattleiksdeild ÍR fékk Unglingabikar HSÍ 2012

Handknattleiksdeild ÍR fékk Unglingabikar HSÍ 2012, en hann er veittur árlega til þess félags sem þykir standa best að unglingamálum í handknattleik. Fimm manna nefnd á vegum HSÍ fer yfir gang mála hjá félögunum á hverju tímabili. Nefndina skipa fulltrúi fræðslunefndar, fulltrúi mótanefndar, mótastjóri HSÍ, íþróttastjóri HSÍ og fulltrúi landsliðsnefnda HSÍ.
 
 Frábært fyrir félagið að fá þessi verðlaun og er þetta viðurkenning á því mikla og góða barna- og unglingastarfi sem unnið hefur verið hjá ÍR handbolta sem þykir hafa skarað framúr hvað varðar eflingu og viðhaldi á störfum yngri flokka.

Verðlaun þessi eru táknræn fyrir þá miklu uppbyggingu í yngri flokkum sem verið hefur síðasta ár undir styrkri stjórn Barna- og Unglingaráðs ÍR Handbolta (BOGUR) sem hefur öflugt þjálfarateymi og yfirþjálfara á sínum snærum, frábæra iðkendur og virka foreldra í öllum flokkum, enda er
gott foreldrastarf góður rammi utan um starfið okkar og lykillinn að því að við náum árangri .
 
 

Við sáum á þessu tímabili að þannig gerum við stórkostlega hluti saman sem ein heild, enda er ævintýrið rétt að byrja í Breiðholti hjá ÍR Handbolta og við hvetjum alla til að taka virkan þátt í því á næsta tímabili með okkur strax frá upphafi.
 
Frábært !!!!!
Farið á  Facebook ÍR Handbolta  og  fylgjast með okkur þar.
13.5.2012

Sigurjón F. Björnsson(Sjonni) genginn aftur til lið við ÍR.

Sigurjón Björnsson

Rúnólfur og Sjónni handsala saminginn

Sigurjón Björnsson hefur ákveðið að ganga til liðs við uppeldisfélagið sitt á nýjan leik. Sigurjón sem spilar stöðu hægri hornamanns er nýkrýndur Íslandsmeistari með HK þar sem hann hefur leikið undanfarin 2 ár. Sigurjón hefur gert tveggja ára samning við ÍR
Auk þess að leika með liðinu mun Sigurjón taka að sér þjálfun yngriflokka hjá félaginu.
Þetta er stór þáttur í styrkingu liðsins fyrir átökinn í N1 deildinni á næsta vetri þar sem ÍR-ingar ætla sér stóra hluti.
Við bjóðum Sigurjón velkominn í hópinn.

13.5.2012

ÍR Handbolti vinnur Unglingabikar HSÍ 2012 !!!!

Innilega til hamingju ÍR með verðlaunin á lokahófi HSÍ í gær. Kristófer, Davíð, Bjarki og síðast en alls ekki síst, Barna og unglingaráð með Unglingabikar HSÍ sem veittur er einu sinni á ári, því félagi sem stendur best að barna- og unglingamálum í handknattleik á ári hverju !!!

ÍR fékk eftirfarnadi verðlaun í gær.
Besti markmaður 1.deildar karla 2012: Kristófer Fannar – ÍR
Besti Þjálfari í 1.deild karla 2012: Bjarki Sigurðsson - ÍR
Leikmaður ársins í 1.deild karla 2012: Davíð Georgsson - ÍR
Unglingabikar HSÍ 2012:  Barna- og unglingaráð ÍR Handbolta

ÍR er einfaldlega best til hamingju við öll , ÁFRAM ÍR!!!!
Verið vinir ÍR Handbolta á Facebook og fáið þannig myndir, fréttir og slúður beint í fréttaveituna ykkar.. > ÍR Handbolti Facebook <
7.5.2012

Reykjavíkurmót 6.fl. kvenna í Austurbergi 12 og 13. maí

Nú er komið að Reykjavíkurmótinu og ÍR var úthlutað að sjá um 6. flokk kvenna.
Því miður er fyrirvarinn ótrúlega stuttur, vorum að fá í hendur leikjaplan fyrir mótið sem má sjá hér fyrir neðan. Foreldrar, vandamenn og aðrir ÍR-ingar við verðum bara að vera dugleg að taka þátt og skrá okkur í t.d. >>tímavörslu og hússtjórn<<.

Austurberg
 
Völlur 1
 
Völlur 2
Tími
Deild
Leikur
Tími
Deild
Leikur
lau
12:30
Eldri A
Valur 1 - Fylkir 1
lau
12:30
Eldri A
Fjölnir 1 - ÍR
lau
12:45
 
lau
12:45
 
lau
13:15
Eldri A
Fram 1 - Valur 1
lau
13:15
Eldri A
Fylkir 1 - Fjölnir 1
lau
13:45
Eldri B
Valur 2 - Fjölnir 2
lau
13:45
Eldri B
Fram GH 1 - Fram GH 2
lau
14:15
Eldri A
ÍR - Fram 1
lau
14:15
Eldri A
Valur 1 - Fjölnir 1
lau
14:45
Eldri B
Fram GH 1 - Valur 2
lau
14:45
Eldri B
Fram GH 2 - Fjölnir 2
lau
15:15
Eldri A
Fylkir 1 - ÍR
lau
15:15
Eldri A
Fjölnir 1 - Fram 1
lau
15:45
Eldri B
Fjölnir 2 - Fram GH 1
lau
15:45
Eldri B
Valur 2 - Fram GH 2
lau
16:15
Eldri A
ÍR - Valur 1
lau
16:15
Eldri A
Fram 1 - Fylkir 1
   
   
sun
10:00
Yngri A
Fylkir 2 - Fylkir 1
sun
10:00
Yngri A
Fram 1 - Fram GH 1
sun
10:30
Yngri B
Fram 2 - ÍR 2
sun
10:30
Yngri B
Fram GH 2 - Fram GH 3
sun
11:00
Yngri A
ÍR 1 - Fylkir 2
sun
11:00
Yngri A
Fylkir 1 - Fram 1
sun
11:30
Yngri B
Valur - Fram 2
sun
11:30
Yngri B
ÍR 2 - Fram GH 2
sun
12:00
Yngri A
Fram GH 1 - ÍR 1
sun
12:00
Yngri A
Fylkir 2 - Fram 1
sun
12:30
Yngri B
Fram GH 3 - Valur
sun
12:30
Yngri B
Fram 2 - Fram GH 2
sun
13:00
Yngri A
Fylkir 1 - Fram GH 1
sun
13:00
Yngri A
Fram 1 - ÍR 1
sun
13:30
Yngri B
ÍR 2 - Fram GH 3
sun
13:30
Yngri B
Fram GH 2 - Valur
sun
14:00
Yngri A
Fram GH 1 - Fylkir 2
sun
14:00
Yngri A
ÍR 1 - Fylkir 1
sun
14:30
Yngri B
Fram GH 3 - Fram 2
sun
14:30
Yngri B
Valur - ÍR 2

 

6.5.2012

Handboltavaka hjá 5.fl. kv. og ka., föstud. 4. maí í Austurbergi.

Það voru flottir krakka sem mættu í Austurberg föstudagskvöldið 4. maí þegar hið árlega handboltamaraþon hjá 5. flokk kvenna og karla var haldið.  Keppni hófst kl. 21:00 og var spilaður handbolti fram eftir nóttu. Ýmsar útfærslur á liðum komu fram þar sem var blandað mót, strákar vs. stelpur, eldra vs. yngra, vítakeppni , skotkeppni og mikið gekk á í foreldraleik sem var virkilega skemmtilegur, 40 pizzur komu í húsið kl. 01:00 og seinasta leik lauk ekki fyrr en kl. 03:15.
Það er óhætt að segja að við eigum flotta krakka sem eru til fyrirmyndar og einnig má ekki gleyma öllum foreldrum og þjálfurum sem tóku þátt i þessu með krökkunum. Alveg frábært og óhætt að segja að framtíð okkar sé björt hjá ÍR Handbolta.
 
3.5.2012

Frábærar fréttir fyrir ÍR: Ingimundur og Sturla komnir heim!

Á hópmyndatöku allra flokka hjá ÍR handboltanum í Austurbergi í dag birtust ÍR-ingarnir og handboltahetjurnar Ingimundur Ingimundarson og Sturla Ásgeirsson og skrifuðu undir tveggja ára samning við félagið, meiriháttar viðburður fyrir ÍR.

Ingimundur, Runólfur, Sturla og Bjarki.
>>Myndaalbúm<<     >>Facebook<<      >>Frétt MBL<<