Lesa frétt
10.12.2011
Sigur á Stjörnunni og okkar menn áfram á toppnum.
Leikur kvöldsins hjá okkar drengjum var gegn Stjörnunni í Mýrinni. Um var að ræða leik á milli tveggja efstu liðanna í deildinni og því mátti búast við að taugar leikmanna væru þandar til hins ýtrasta. Merki þessa mátti sjá á upphafsmínútum leiksins því markaskor var lágt framan af og nokkuð var um tæknileg mistök.
Leikurinn var í járnum í fyrri hálfleik en okkar menn fóru þó inn í hálfleik með forystu 14-13. Seinni hálfleikur byrjaði illa fyrir okkar menn því Stjörnumenn náðu fljótt fjögurra marka forystu og svo virtist sem þeir væru að ná föstum tökum á leiknum, en ekki aldeilis. Þegar um tíu mínútur voru eftir af leiknum var engu líkara en að okkar menn hefðu vaknað upp af værum blundi. Frábær varnarleikur sem skilaði sér í góðum hraðaupphlaupsmörkum einkenndu síðustu tíu mínúturnar ásamt því að sterk innkoma reynsluboltans Brynjars Steinarssonar hafði mikið að segja. Á þessum tíu mínútum náðu ÍR-ingar forystu í leiknum og Stjörnumenn áttu fá svör við varnarleik og markvörslu okkar manna. Með frábærum karakter lönduðu okkar íðilfögru drengir eins marks sigri og styrktu því stöðu sína á toppnum nú þegar mótið er hálfnað.
Markahæstir okkar manna í kvöld var hinn ljónharði Jónatan Vignisson sem skoraði heil 7 mörk og Máni Gestsson sem ásamt því að standa vörnina með bravör skoraði 5 mörk. Síðasti leikur liðsins áður en hin helga jólahátíð gengur í garð er gegn gríðarsterku liði ÍBV í Vestmannaeyjum laugardaginn 17.desember. Vonandi verður áframhald á góðu gengi okkar manna þar. Áfram ÍR.