Lesa frétt
10.1.2012
ÍR Handbolti er málið 2.tbl. tímabilið 2011-2012 er komið út. Ert þú í blaðinu okkar ??
Fyrsta tölublaðið af "ÍR Handbolti er málið" kom út í 4. okt., og hefur það verið skoðað 8911 sinnum frá útgáfu samkvæmt vefmælingu Issuu sem hýsir það. Þessar viðtökur fóru fram úr okkar björtustu vonum og þökkum við ykkur fyrir.
Vetrarstarf handknattleiksdeildar ÍR er nú hálfnað og seinni hluti tímabils farinn í fullt og því er við hæfi að annað tölublað af " ÍR Handbolti er málið" fyrir tímabilið 2011-2012 komi út.
Við höldum áfram frá því þar sem frá var horfið í fyrsta tölublaði og förum yfir það helsta sem gerðist í október, nóvember og desember hjá krökkunum okkar. Þessir krakkar eru til fyrirmyndir fyrir félagið og hverfið okkar sem við megum öll vera stolt af.
Tímaritið kemur áfram út sem "Interactive PDF " þannig að hægt er að smella á tákn og hlekki inn í blaðinu til að skoða nánar myndir, video eða annað sem tengist viðkomandi frétt.
Interactive " Handbolti er málið" issuu opnast í nýjum glugga ef smellt hér
Eða smellið á blað til að skoða það hér að neðan.
*Einnig hægt að vista í tölvu og skoðað blaðið sem PDF og prentað það út fyrir krakkana með því að smella á hlekk hér að neðan.
http://ir.is/media/pdf/IR_Handbolti_er_malid_2_2011.pdf
Það eru flottir krakkar sem æfa handbolta hjá okkur og við vitum að þið hefðuð gaman að vera hluti af þessum flotta hóp. Það er aldrei of seint að byrja að æfa handbolta og okkur langar til að fá þig með á æfingar hjá okkur, það er alltaf pláss fyrir káta og hressa krakka og það kostar ekkert að prófa.
Við erum með æfingar í Seljaskóla, Austurbergi og Breiðholtsskóla, . Á heimasíðu okkar og bloggsíðum er æfingataflan þar sem þið sjáið hvar og hvenær ykkar aldursflokkur er á æfingu, einnig er á síðum okkar margar aðrar upplýsingar sem ykkur vantar um starfið .
Hlakka til að sjá ykkur á æfingum og á heimaleikjum ÍR Handbolta.
Heimili ÍR Handbolta er í Austurbergi.
Kveðja Barna- og Unglingaráð ÍR Handbolta