Lesa frétt
9.2.2010
Frábær vinnusigur gegn Selfoss
Mikill vinnusigur staðreynd hjá okkar mönnum á móti toppliði deildarinnar Selfossi í kvöld. Strákarnir voru greinilega mættir til sigurs í kvöld og kláruðu þeir leikinn með sigur 30-28. Leikurinn hófst gríðarvel þar sem vörn og markvarsla fengu á sig 2 mörk fyrstu 10 mínúturnar. Bæði liðin voru að þreifa fyrir sig í sókn framan af í fyrri hálfleik en liðin fundu síðan taktinn á síðustu 10 mínúturnar í fyrri hálfleik. ÍR leiddi leikinn með 5 mörkum í hálfleik 14-9. Sóknarlega var Jónatan mjög sterkur og Arnór átti stórgóðan fyrri hálfleik með vinnusama ÍR vörn fyrir framan sig og varði 14 bolta.
Í byrjun seinni hálfleiks byrjuðum við mjög vel fyrstu 10 mínúturnar þar sem Andri skoraði 4 mörk og náðum við 8 marka forskoti 20 - 18. Selfoss tók leikhlé og náði að komast inn í leikinn, skoruðu 3 mörk í röð og voru komnir 2 mörkum frá okkur 20-18 þegar 10 mínútur voru eftir. Á þessum kafla fengum við dæmda á okkur fullt af sóknarbrotum og tveggja mín. brottvísanir.
Á síðustu 10 mín. leiksins sýndu strákarnir að þeir geta klárað dæmið þegar það liggur við. Þrátt fyrir sóknarmistök þá hættu menn ekki að berjast fyrir hverjum bolta og uppskáru eftir því.
Næsti leikur er 19. febrúar sem er fyrsti leikur í 3. umferð og er enn óljóst hvernig það raðast. Góð mæting var á leikinn og stemmingin góð og hvetjum við alla til að mæta á næsta leik og taka þátt í verkefninu með strákunum. Áfram ÍR!
Varin skot ÍR:
Arnór 22 bolta
Skoruð mörk ÍR:
Andri H. 9
Jónatan 7
Toggi 5
Sjonni 4
Davíð 2
Halldór 1
Binni 1
Siggi 1
Skoruð mörk Selfoss:
Atli Kristins 6
Guðni Ingvars 4
Hörður Bjarnars 3
Ívar Grétars 3
Ragnar Jóhanns 3
Árni Steinn 3
Helgi Héðins 2
Hörður Másson 2
Einar Héðins 2