Lesa frétt
5.2.2010
Góður útisigur á Fjölni
ÍR strákarnir mættu Fjölni í Grafarvogi í kvöld og innbyrðu góðan sigur, 29 - 24. Okkar menn leiddu mestallan leikinn mjög svo einbeittir á verkefni dagsins. Í upphafi leiks skiptust liðin á að skora en við náðum nokkurra marka forustu sem við náðum að auka um miðjan hálfleikinn og leiddum við með 5 mörkum í hálfleik 11-16. Fjölnismenn börðust allan tíman fyrir sínu og gáfu sér góðan tíma í sóknina. Við náðum að halda dampi þrátt fyrir aukin tæknimistök í seinni hálfleik. Leikurinn endaði með 5 marka sigri 24-29.
Næsti leikur er næstkomandi þriðjudag 9. febrúar kl. 19.30 í Austurbergi þegar við tökum á móti toppliði deildarinn Selfossi. Hvetjum alla til að mæta og styðja okkar menn til sigurs.
Varin skot:
Arnór 18
Hermann 1
Skoruð mörk:
Jónatan 9/14
Toggi 8/11 (5/5 víti)
Davíð 3/4
Sjonni 3/5
Andri 2/3
Binni 2/3
Óli 1/2
Ágúst 1/1