Lesa frétt
26.1.2010
Myndir, Smá upprifjun úr leikjum og fl.
Viljum benda á að það eru alltaf að koma fleiri og fleiri myndir með
tímanum inná síðuna. Hefur verið smá vesen með það en það er allt í
góðum farvegi.
Myndirnar úr áramótleiknum eru til dæmis komnar inn og er hægt að finna þær hér og svo koma myndirnar hægt og rólega inn á Myndasafnið
Ég skrifaði einnig örlítið um seinustu leiki sem ég hef kíkt á en við
verðum duglegri núna á nýju ári að koma með lýsingar og markaskorara og
fleira úr sem flestum leikjum :D
Minni svo ennfremur á leikinn á miðvikudaginn í Víkinni! Allir að mæta!
Smá upprifjun úr leikjum:
Föstudaginn 15. janúar kíktu meistaraflokks stelpur í heimsókn á Ásvelli og mættu þar Haukaliðinu í annarri deildinni. Stelpurnar mættu ákveðnar til leiks og staðráðnar í að vinna annan leikinn í röð á árinu sem og þær gerðu með þó nokkrum yfirburðum. Þær unnu leikinn með 10 mörkum eða 18 – 28. Flott byrjun á nýju ári hjá stelpunum.
Strákarnir í 2. flokki kepptu á móti Stjörnunni í bikarnum og var það vægast sagt jafn leikur sem strákarnir töpuðu með einu marki 25 – 24. Leikur sem okkar menn hefðu átt að klára en misstigu sig aðeins á erfiðum útivelli.
Þeir komu síðan sterkir til baka og sigruðu Selfoss í Berginu með þremur mörkum 28 – 25. Flottur leikur hjá þeim og þeir unnu verðskuldaðan sigur. Í gær kepptu þeir síðan á móti FH í spennandi leik í Austurbergi. Okkar menn leiddu leikinn í hálfleik með fjórum mörkum en misstu forskotið niður strax undir byrjun fyrri hálfleiks. Seinni hálfleikurinn var því mjög jafn og endaði leikurinn með jafntefli og gaman að segja frá því þá endaði hann rosalega svipað og leikur Íslendinga og Króata fyrr um daginn þ.e. Fh ingar fengu seinustu mínútuna til þess að komast yfir en náðu ekki að nýta sér það.
Meistaraflokkurinn spilaði sinn fyrsta leik eftir áramót á Sunnudaginn var. Aftureldingarmenn komu þá í heimsókn. Leikurinn var mjög jafn í fyrri hálfleik og hálfleikstölur voru 10 – 10. Okkar menn misstu aðeins dampinn í seinni hálfleik og Aftureldingarmenn nýttu sér það vel og unnu leikinn örugglega 19 – 28. Slæmur seinni hálfleikur hjá strákunum eftir fína byrjun.
Næsti leikur meistaraflokks er á miðvikudag gegn Víking í Víkinni og er mikilvægt að sem flestir ÍR-ingar mæti og hvetji strákana á þessum erfiða útivelli.
ÁFRAM ÍR