Lesa frétt
28.12.2009

Áramótaleikur 30.desember milli meistaraflokks og fyrrverandi leikmanna

Áramótaleikur meistaraflokks karla og fyrrverandi leikmanna verður í Austurbergi kl.17:30 miðvikudaginn 30.desember.
Þarna rifja fyrrverandi leimenn upp gamla takta og miðla vonandi löngu gleymdum handbolta töfrabrögðum til yngri kynslóðarinnar.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir áhangendur, stjórnarmenn, fjölskyldur og leikmenn til að hittast.

Kynnir er enginn annar en Frosti Guðlaugsson sem einnig sér um skemmtiatriði í hálfleik.
Dómarar verða sérútvaldir aðilar sem ráða við að dæma svona hraðan handknattleiksleik.
Ef það er einhver þarna úti sem vill spila, þá er bara að mæta með skóna og sjá hvað þeir "gömlu" segja.
Minnum á flugeldasýningu við ÍR heimilið að leik loknum.