bilaleigaak_150x100

n1_logo_grunni

servida Besta

 


Lesa frétt
14.5.2012

Handknattleiksdeild ÍR fékk Unglingabikar HSÍ 2012

Handknattleiksdeild ÍR fékk Unglingabikar HSÍ 2012, en hann er veittur árlega til þess félags sem þykir standa best að unglingamálum í handknattleik. Fimm manna nefnd á vegum HSÍ fer yfir gang mála hjá félögunum á hverju tímabili. Nefndina skipa fulltrúi fræðslunefndar, fulltrúi mótanefndar, mótastjóri HSÍ, íþróttastjóri HSÍ og fulltrúi landsliðsnefnda HSÍ.
 
 Frábært fyrir félagið að fá þessi verðlaun og er þetta viðurkenning á því mikla og góða barna- og unglingastarfi sem unnið hefur verið hjá ÍR handbolta sem þykir hafa skarað framúr hvað varðar eflingu og viðhaldi á störfum yngri flokka.

Verðlaun þessi eru táknræn fyrir þá miklu uppbyggingu í yngri flokkum sem verið hefur síðasta ár undir styrkri stjórn Barna- og Unglingaráðs ÍR Handbolta (BOGUR) sem hefur öflugt þjálfarateymi og yfirþjálfara á sínum snærum, frábæra iðkendur og virka foreldra í öllum flokkum, enda er
gott foreldrastarf góður rammi utan um starfið okkar og lykillinn að því að við náum árangri .
 
 

Við sáum á þessu tímabili að þannig gerum við stórkostlega hluti saman sem ein heild, enda er ævintýrið rétt að byrja í Breiðholti hjá ÍR Handbolta og við hvetjum alla til að taka virkan þátt í því á næsta tímabili með okkur strax frá upphafi.
 
Frábært !!!!!
Farið á  Facebook ÍR Handbolta  og  fylgjast með okkur þar.