bilaleigaak_150x100

n1_logo_grunni

servida Besta

 


Lesa frétt
18.12.2011

Frábær sigur í Vestmannaeyjum

Leikmenn meistaraflokks ÍR í handbolta fóru í ferðalag til Vestmannaeyja í gær, laugardag, til þess að sækja tvö stig sem nota má í baráttunni um sæti í úrvalsdeild á næsta ári. Það er skemmst frá því að segja að ferðin gekk eins og í sögu og verkefnið var leyst með bravör. Okkar drengir stjórnuðu leiknum gegn ÍBV frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu og unnu að lokum öruggan 7 marka sigur 34-27 eftir að hafa náð mest 11 marka forystu. Þessi frábæri leikur drengjanna þarf ekki að koma á óvart miðað við einbeitinguna, viljann og gleðina sem skein úr hverju andliti drengjanna fyrir leikinn. Markahæstur ÍR-inga var Daníel Ingi með 6 mörk en hann var gríðarlega öruggur á vítalínunni í gær. Leikurinn var sá síðasti fyrir langt jólafrí og það er því ljóst að með fjögurra stiga forskot í deildinni fara drengirnir okkar syngjandi glaðir í jólafrí. Gleðileg jól.