Lesa frétt
1.9.2010

Æfingartöflur í gildi

Æfingatöflur eru komnar á forsíðu heimasíðu ÍR og síður deilda, undir rauðum flipa "Æfingatöflur og gjöld". Allar taka þær gildi 1.sept. nema Dans sem byrjar laugardaginn 4.september og Keila og Íþróttaskóli 3-6 ára sem hefst mánudaginn 6.september.
Hafa ber í huga að íþróttahús Seljaskóla er lokað í september og þangað til við komumst með æfingar þangað inn taka vissar deildir á sig skerðingu. Æfingatöflur körfu og handbolta eru því tvískiptar.
Knattspyrnutímabilinu lýkur nú í sept. og ný vetrartafla hjá deildinni tekur gildi 1.okt. Hún kemur inn von bráðar.