Lesa frétt
16.8.2010
Handboltanámskeið Bjarna Fritz
Handboltanámskeiði Bjarna Fritz er lokið, en það hefur staðið síðustu tvær vikur. 60 krakkar á aldrinum 11-15 ára tóku þátt. Sérstakur aðstoðarmaður Bjarna var Sturla Ásgeirsson. Einnig voru þær Steinunn og María þeim til aðstoðar. Að sjálfsögðu var yfirþjálfarinn Andrés Gunnlaugsson á svæðinu.
Námskeiðinu var skipt í 3 hópa, til að allir fengi næga athygli. Ekki var eingöngu um handboltakennslu að ræða, Bjarni ræddi mataræði, afrekshugsun og margt fleira. Að loknu námskeiðinu fengu allir viðurkenningaskjöl frá þeim félögum. Þeir iðkenndur sem að lögðu sig mest fram fengu þátttökuverðlaun.
Myndir frá námskeiðinu verða settar hingað inn á allra næstu dögum.