Lesa frétt
2.8.2010

ÍR í U-20 bloggar frá Slóvakíu

Þorgrímur og Arnór heilsa ykkur hér á þessum flotta sunnudegi (í gær). Við ætlum ad fara yfir seinustu daga hérna hjá okkur í Slovakíu.

Föstudagurinn
Farið var í moll þar sem allir gátu fengið sitthvað við sitt hæfi, nema Toggi. Hann keypti sér ekkert, kaupir ekki til að kaupa og má því á orði komast að hann sé A-klassamaður. Arnór hinsvegar var eins og versta stelpa sem var nýbúin að fá útborgað eða var að eignast ríkan kærasta og keypti allt á tá og fingri, aðallegasamt á fingri. Farið var upp á hótel eftir þennan afdrifaríka Kringlu dag. Hótel lífið hérna er ágætt, maður situr og liggur í senn og horfir á myndir, þáttaraðir og fleira í þeim dúr.

Laugardagur
Um morguninn var tekinn morgunnmatur og göngutúr til að vakna. Leikur gegn achmetunum í Isreal hófst klukkan 2. Sigur með 9 mörkum segir allt held ég. Vorum allan tíman yfir en duttum adeins í fyrrihálfleik á lélegt plan, þar að segja sama plan og þeir og vorum við að leiða með 2 mörkum í hálfleik. Dagurinn fór svo í að detta á pizza stað og það sem engum datt í hug, uppá hótelherbergin. Áttum erfitt með svefn þessa nótt en reddaðist á endanum þegar Arnór fór að telja kindur.

Sunndagur (dagurinn í gær)
Vakning 7.00, morgunmatur 7.05, svefn til 9.20, göngutúr í góðan hálftíma og chill í klukkutíma. Leikur gegn Portúgal, erfitt og gott lið sem vann okkur með 1 marki eftir að hafa verið yfir allan leikinn. Við byrjuðum illa sem var okkar Akkilesarhæll, þeir komust í 6-1. Einnig var vörnin eins og svissneskur ostur, vel götótt. Þó svo við töpuðum þessum leik erum við ekki búnir að leggja árar í bát. Við fáum Frakka og Dani í milliriðlinm, sigur í báðum þessum leikjum fleitir okkur í undanúrslit. Það er akkúrat seinasti viðkomustaður áður en við förum í úrslit og vinnum. En auðvitað hugsum við einn hlut í einu og það er eina vitið.

Yfir og út,
Þorgrímur Smári og Arnór